Þú ert hér://Tag: Gunnar Hildimar Halldórsson

Vítahringur hjónaerja

2026-10-16T14:46:54+00:0016. október 2026|

Rúmlega fertuga stofudramað Djöflar eftir sænska leikskáldið Lars Norén var frumsýnt fyrir viku á Nýja sviði Borgarleikhússins en ég sá aðra sýningu á verkinu í gærkvöldi. Þýðandi er Hlín Agnarsdóttir en leikstjóri Stefán Jónsson. Börkur Jónsson hannaði leikmyndina sem var mjög smart og líka furðu yfirgripsmikil, þar var – á einu gólfi – eldhús og [...]

Við eigum alltaf Fjallabak

2025-05-04T15:53:13+00:004. maí 2025|

Það var ekki seinna vænna fyrir mig að sjá Fjallabak í Borgarleikhúsinu því að nú eru aðeins tvær auglýstar sýningar eftir, en verkið var frumsýnt fyrir fimm vikum á Nýja sviði hússins. Leikskáldið Ashley Robinson byggir leikritið á þekktri smásögu eftir Annie Proulx sem einnig var efni ennþá frægari kvikmyndar fyrir tuttugu árum, Brokeback Mountain. [...]

Átök um auðinn

2024-12-29T15:44:16+00:0029. desember 2024|

Borgarleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi á Litla sviðinu Kött á heitu blikkþaki eftir Tennessee Williams í mergjaðri þýðingu Jóns St. Kristjánssonar. Hér er hvorki gripið til orðskrípa á borð við fokk eða sjitt heldur fær sá í neðra að heyra á sig kallað milliliðalaust. Og oft! Þorleifur Örn Arnarsson leikstýrir af næmi og nákvæmni. Naumhyggjulega leikmynd [...]

Kona vill skilja

2024-10-12T14:43:07+00:0012. október 2024|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi á stóra sviði Borgarleikhússins Óskaland eftir bandaríska leikskáldið Bess Wohl í lipurri þýðingu Ingunnar Snædal. Hilmir Snær Guðnason leikstýrði en Börkur Jónsson gerði áferðarfallega en gelda leikmyndina sem reyndist vera góð mynd af lífi fólksins í húsinu. Búningar Urðar Hákonardóttur voru vel við hæfi, einkum var snjallt að klæða utanaðkomandi [...]

Kvöldstund með Heiðari snyrti

2024-01-26T10:47:50+00:0020. janúar 2024|

  „Þú gætir kallað umsögnina þína Veislu undir grjótvegg,“ sagði fylgdarmaður minn þegar við vorum sest inn í Litla sal Borgarleikhússins í gærkvöldi og virtum fyrir okkur glæsilega sviðsmynd Barkar Jónssonar, háa, grófa og margbrotna Drápuhlíðargrjótvegginn sem húsbóndinn á heimilinu, Ingi (Sigurður Þór Óskarsson), skreytir með rauðum ljósaklösum meðan gestir á Lúnu eftir Tyrfing Tyrfingsson [...]

Lifandi leikhús

2023-12-06T16:14:01+00:004. desember 2023|

Heimildaleiksýningin Fúsi: aldur og fyrri störf eftir Agnar Jón Egilsson og viðfangsefnið, Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson, var frumsýnd á vegum Monochrome og L.R. í litla sal Borgarleikhússins 17. nóvember en ég sá hana ekki fyrr en í gærkvöldi. Þetta er sérstæð sýning og um margt merkileg, og þó að hún sé helst til teygð á köflum [...]

Gömul saga og glæný

2023-10-03T09:56:27+00:0030. september 2023|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi af margföldu tilefni sjötugan söngleik þeirra bræðra og snillinga Jóns Múla og Jónasar Árnasona, Deleríum búbónis. Bergur Þór Ingólfsson lagaði verkið að nýjum tíma og leikstýrir sýningunni eins og fer ekki framhjá neinum. Þar er skörp kímnigáfa hans við stjórn, glöggt auga hans fyrir tímasetningum og óbrigðult næmi hans á [...]