Þú ert hér://Tag: Gunnar Helgason

Bækur um það sem er bannað

2024-09-19T11:22:20+00:0019. september 2024|

Gunnar Helgason: Bannað að eyðileggja, Bannað að ljúga og Bannað að drepa. Mál og menning, 2021, 2022 og 2023. Úr Tímariti Máls og menningar, 3. hefti 2024.       Hinar svonefndu ADHD-bækur Gunnars Helgasonar hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár en þær komu út 2021, 2022 og 2023. Allar bækurnar þrjár, Bannað að eyðileggja, Bannað að ljúga [...]

Drottningin heimsækir Bæjarbíó

2023-10-03T09:41:31+00:002. október 2023|

Gaflaraleikhúsið frumsýndi í gær barnasýninguna Drottningin sem kunni allt nema ... eftir leikhópinn og Björk Jakobsdóttur sem líka leikstýrir. Í húsnæðisvanda sínum hefur hópurinn fengið inni í Bæjarbíói í Hafnarfirði, því fornfræga húsi sem kallar fram ótal minningar um myrkar og dularfullar sænskar og ítalskar bíómyndir frá sjöunda áratugnum. Það var sannarlega ekkert myrkt eða [...]

„Búum til betri heim“

2023-03-06T11:53:38+00:006. mars 2023|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær á stóra sviðinu fjölskyldusöngleikinn Draumaþjófinn eftir Björk Jakobsdóttur sem byggður er á skáldsögu Gunnars Helgason með sama nafni frá 2019. Dillandi fjörug tónlistin er eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson sem er líka tónlistarstjóri en söngtextana sömdu þau sundur og saman Björk, Gunnar og Hallgrímur Helgason. Ævintýraleg leikmyndin, dularfullur, margslunginn, sannfærandi og hrífandi [...]

Sælla er að gefa en þiggja

2022-11-28T15:34:10+00:0027. nóvember 2022|

Þau voru að sprengja enn eina gleðisprengjuna í Gaflaraleikhúsinu, Jól á náttfötunum eftir Gunnar Helgason og Felix Bergsson sem þeir leika líka ásamt Karli Olgeirssyni píanóleikara. Lögin smellnu semja þeir Jón Ólafsson og Máni Svavarsson, ljósunum sem taka fullan þátt í sýningunni stýrir Freyr Vilhjálmsson og leikstjóri er að sjálfsögðu Björk Jakobsdóttir sem líka sér [...]

Þetta á að vera FÓTBOLTABÓK!

2020-04-28T14:38:50+00:0028. apríl 2020|

Um Fótboltasöguna miklu eftir Gunnar Helgason eftir Jón Yngva Jóhannsson úr Tímariti Máls og menningar, 4. hefti 2015   Gunnar Helgason / ljósm.: Gassi Það getur verið mögnuð upplifun að fara á fótboltaleiki með Þrótti. Á heimaleikjum  í Laugardalnum  lærist manni  fljótt að stjörnur  félagsins eru ekki bara inni  á vellinum. Í stúkunni  [...]

Eins og allir aðrir – bara spes

2019-10-20T13:45:34+00:0020. október 2019|

Mamma klikk eftir Gunnar Helgason er meðal vinsælustu íslensku barnabóka þessarar aldar en það lá alls ekki á borðinu að hægt væri að færa hana á svið með góðu móti. Eins og allir sem hafa lesið hana vita geymir hún óhemju stórt leyndarmál sem við komumst ekki að fyrr en í lokin – og verðum [...]

Eru það kannski töfrar?

2019-05-08T17:48:26+00:0017. janúar 2016|

Leikmyndin í sýningunni Hvítt sem frumsýnd var í dag í Hafnarborg á vegum Gaflaraleikhússins er undurfalleg: Hvítt tjald og lítil hvít fuglahús á misháum stólpum á hvítu gólfi með hvítt baktjald. Hvíti liturinn er ekki bara snjóhvítur heldur líka kremhvítur, rjómahvítur og hrímhvítur í bland svo úr verður hvít litadýrð. Það er Catherine Wheels leikhópurinn [...]

Matarlist í Hafnarfirði

2019-05-20T16:45:49+00:001. mars 2015|

Gaflaraleikhúsið heldur uppi heiðri grínsins þessi misserin og ekki er hann slakur farsinn sem Gunnar Helgason og Felix Bergsson hafa kokkað saman og kalla Bakaraofninn. Ég er með svo miklar harðsperrur í kjálkunum eftir hlátursköstin að ég get ekki ennþá talað með góðu móti. Gott að geta látið nægja að skrifa. Þeir fengu sem sagt [...]

„Út um trissur alls staðar eru tómir óvitar“

2019-06-12T14:50:15+00:0014. október 2013|

Barnaleikritið Óvitar eftir Guðrúnu Helgadóttur var frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins í gær, landsins börnum til mikillar ánægju. Gunnar Helgason stýrir því af sínu alkunna fjöri og hugmyndaauðgi og Ilmur Stefánsdóttir gerir litríka leikmynd sem er heilt ævintýri fyrir unga áhorfendur. Leikarar eru geysimargir og allt á iði á sviðinu í senum sem gerast utanhúss. Innanhúss [...]

Að lifa lengi á lyginni

2019-06-19T10:25:42+00:0012. nóvember 2012|

Sögurnar af Múnkhásen barón hafa skemmt fólki alveg síðan á 18. öld þegar hann sjálfur var á dögum, fyrst í hans eigin frásögn, svo í endursögnum, misjafnlega trúum frumsögunum, í bókum ýmissa höfunda og loks í útvarpi og kvikmyndum. Það er ákaflega vel til fundið af Gaflaraleikhúsinu að rifja upp þessar sögur í fjölskyldusýningu sinni [...]