Þú ert hér://Tag: Friðrik Friðriksson

Leikhúslaugardagur

2019-08-23T16:44:56+00:008. maí 2011|

Ég sá tvær býsna ólíkar sýningar í gær. Önnur var Eldfærin uppi á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu, hin frumsýning leikhópsins Ég og vinir mínir á fjöllistaverkinu Verði þér að góðu í Kassa Þjóðleikhússins. Sú fyrri er eins konar sögustund, þar sem tveir meistarar gamanleiksins láta eitt frægasta ævintýri H.C. Andersens lifna á sviðinu. Sú seinni [...]

Brestur á með söng

2019-08-24T12:53:13+00:009. apríl 2011|

Það er mótsögn í orðunum sígilt og dægurlag en þó er það svo að fátt er eins sígilt og dægurlag sem hefur lifað af. Það er ekki aðeins sígilt af því að það heldur áfram að vera vel samið, jafnvel snilldarlega gert, heldur getur það á augabragði kallað fram minningar, jafnvel um atvik sem við [...]

Glæpasaga úr Hlíðunum

2020-01-30T11:55:58+00:0028. febrúar 2010|

Það sem Bragi Ólafsson gerir svo snilldarlega í verkum sínum, skáldsögum og leikritum, er að leiða mann inn í aðstæður sem eru raunsæjar og eðlilegar og vinna með þær, á máta sem freistandi er að kalla ofur-raunsæjan, þangað til þær verða óbærilegar. Um leið og viðtakandi hlær geðveikislega fer honum að líða illa; hann fer [...]

Má ég fá meira?

2020-01-30T15:39:13+00:0027. desember 2009|

Á fjölmennum leiksýningum eins og Oliver! grípur mann sú tilfinning að einmitt til slíks brúks hafi leikhús verið hugsað: til að fylla sviðið af fólki, lífi og fjöri. Þegar barnahópurinn þrammaði inn í borðsal fátækrahælisins í upphafi frumsýningar í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi og raðirnar ætluðu engan endi að taka þá fylltist ég öryggistilfinningu, þetta yrði [...]

Hið manneskjulegasta

2020-01-30T17:07:32+00:0018. maí 2009|

Mönnum brá svolítið í brún þegar Páll Baldvin gaf sýningunni Húmanímal í Hafnarfjarðarleikhúsinu fimm stjörnur af fimm mögulegum í Fréttablaðinu, vissu ekki alveg hvaðan á þá stóð veðrið af því Páll er venjulega spar á hrósið. Ég sá ekki sýninguna fyrr en í gær, kannski næstsíðustu sýninguna, ef aðdáendum tekst ekki að fá þeim fjölgað, [...]

Já, skyldi maður ekki hafa nóg?

2020-01-31T15:50:46+00:0024. febrúar 2009|

Þjóðleikhúsið frumsýndi Kardemommubæinn á sunnudaginn, fullu húsi af fallegum börnum til mikillar kátínu. Selma Björnsdóttir leikstýrði og setti að ýmsu leyti sitt mark á sýninguna, til dæmis voru leikarar ungir, ljónið var póstmódern og las blöðin og dansarnir (sem Birna og Guðfinna Björnsdætur sáu um) krakkalega eróbikklegir. Sviðið hans Brians Pilkingtons er litríkt og fallegt og búningarnir [...]