Þú ert hér://Tag: Eva Signý Berger

Þegar Dóri litli var dæmdur vanhæfur Íslendingur

2019-05-22T13:38:47+00:0016. nóvember 2014|

Aldursbilið milli barns og unglings er ekki langt og ekki vel afmarkað en spennandi vegna þess hvað við erum opin, óræð og óráðin einmitt þá. Það er til dæmis þá sem við fáum gjarnan þá þráhyggju að við séum ekki í alvörunni þau sem okkur er sagt að við séum. Við getum ómögulega verið börn [...]

Að lifa stríð

2019-05-27T13:35:19+00:0028. september 2014|

Ég hef verið stór aðdáandi Konunnar við 1000° síðan ég las hana nýútkomna en ekki bjóst ég við að hún myndi þola að fara á svið. Tíu tíma sjónvarpssería kannski eða að minnsta kosti ílöng tveggja kvölda leiksýning eins og Heimsljós og Sjálfstætt fólk en ekki eitt tveggja tíma leikrit. Þetta hefur þó verið gert. [...]

Fljúga marglitu fiðrildin

2019-05-27T16:39:52+00:0026. maí 2014|

Wide Slumber for lepidopterists (Djúpur dúr fyrir fiðrildafræðinga??) er tónverk utan um ljóðabók eftir Angelu Rawlings, sviðsett með þrem söngvurum af Söru Martí og VaVaVoom og sýnt í Tjarnarbíó. Tónlistin er eftir Valgeir Sigurðsson, seiðandi og svæfandi eins og hæfir verki um rannsóknir á svefni og lífsferli fiðrilda. Söngur Alexi Murdoch, Sasha Siem og Ásgerðar [...]

Lífið er absúrdleikrit

2019-06-04T08:49:23+00:001. mars 2014|

Oft er talað um að erfitt sé fyrir skáld og rithöfunda að koma með verk númer tvö ef fyrsta verk þeirra hefur tekist sérstaklega vel. Nú er Auður Ava Ólafsdóttir auðvitað reyndur og margverðlaunaður höfundur en Svanir skilja ekki sem var frumsýnt í Kassanum í gær er bara annað leikrit hennar og það fyrra, Svartur [...]

Skapað að skilja

2019-06-12T15:06:16+00:0021. september 2013|

Leikritið Harmsaga eftir Mikael Torfason var frumsýnt i Kassa Þjóðleikhússins í gærkvöldi undir stjórn Unu Þorleifsdóttur. Eins og nafnið bendir til er þetta átakanleg og býsna nöturleg mynd úr íslenskum samtíma en því miður líka óþægilega sannferðug. Sigrún (Elma Stefanía Ágústsdóttir) er lögfræðinemi og Ragnar (Snorri Engilbertsson) vinnur á fasteignasölu sem hann á part í. [...]

Á vettvangi glæpsins

2019-06-12T15:41:17+00:006. maí 2013|

Sýningin Hvörf sem Lab-Loki leikhópurinn sýnir nú í samstarfi við Þjóðleikhúsið byggist á málskjölum Guðmundar- og Geirfinnsmálsins en beitir sér einkum að þróuninni í yfirheyrslum yfir helstu sakborningum. Merkilegt hefði líka verið að fá að heyra málsmeðferð fyrir hæstarétti  en á það var bara minnt rétt í lokin að þar var stærsti glæpurinn framinn. Allar [...]

Í fréttum var þetta helst

2019-06-19T11:49:28+00:0018. október 2012|

Þau kalla sig VaVaVoom, myndrænt leikhús með bækistöðvar í London og Reykjavík, og í kvöld frumsýndu þau í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu brúðuleikhúsverkið Nýjustu fréttir eftir Sigríði Sunnu Reynisdóttur, Söru Martí Guðmundsdóttur sem líka leikstýrir, og leikhópinn allan. Þetta er orðalaust verk að heita má, að vísu heyrum við orðaflaum á mörgum tungumálum úr útvarpi og [...]

Stóri bróðir lærir að verða stór

2019-08-08T17:12:23+00:0018. febrúar 2012|

Helga Arnalds brúðulistakona með meiru sýnir nú í kjallara Norræna hússins leikritið Skrímslið litla systir mín undir stjórn Charlotte Bøving sem líka samdi handritið með Helgu. Sagan sem hún segir er alltaf að gerast en er samt alltaf ný og aldrei alveg eins og vekur ævinlega jafnsterk viðbrögð hjá öllum viðkomandi: Barn eignast systkini. Í [...]