Þú ert hér://Tag: Elmar Gilbertsson

„Já, ávinningur verður stór – ef ert‘ í kór“

2022-09-30T14:18:46+00:0018. september 2022|

Það var hátíðisdagur í Þjóðleikhúsinu í fyrrakvöld þegar söngleikurinn Sem á himni eftir Carin Pollak og Kay Pollak (handrit) og Fredrik Kempe (tónlist) var frumsýndur á stóra sviðinu: Framundan spennandi leikhúsvetur eftir löng og leiðinleg covid-ár. Þórarinn Eldjárn á þýðinguna fínu, leikstjóri er Unnur Ösp Stefánsdóttir en tónlistarstjórn í höndum Jóns Ólafssonar. Sagan í Sem á [...]

Stjarna fædd

2019-03-18T13:29:53+00:0010. mars 2019|

Það mega landar mínir eiga að þeir vita hvenær þeir verða vitni að listrænum stórviðburði. Í lok frumsýningar í Íslensku óperunni í gærkvöldi var hverjum hópnum af öðrum fagnað vel og innilega: dönsurum, fjölmennum Kór Íslensku óperunnar, einsöngvurum. Hrólfur Sæmundsson (Giorgio Germont) fékk innilegt lófatak þegar hann gekk inn þriðji síðastur. Næstur kom Elmar Gilbertsson [...]

Ástin hefur … hendur sundurleitar

2019-05-03T17:02:19+00:0023. október 2016|

Íslenska óperan frumsýndi í gærkvöldi glæsilega uppsetningu Benjamins Levy hljómsveitarstjóra og Anthonys Pilavachi leikstjóra á óperunni Évgení Onegin eftir Tchaikovsky. Þetta er upphaflega söguljóð eftir þjóðskáld Rússa, Alexander Púshkin (1799–1837), sem var geysilega vinsælt meðal landa hans en lifir utan Rússlands fyrst og fremst í þeirri mynd sem Tchaikovsky gaf því. Texti óperunnar er eftir [...]

Sjá hér hve illan endi …

2019-05-08T16:21:43+00:0028. febrúar 2016|

Það var mikil hátíð í Íslensku óperunni í gærkvöldi þegar Benjamin Levy hljómsveitarstjóri og Kolbrún Halldórsdóttir leikstjóri frumsýndu uppsetningu sína á Don Giovanni eftir W. A. Mozart og textahöfundinn Lorenzo da Ponte. Snorri Freyr Hilmarsson gerði smekklega leikmyndina og tókst furðuvel að stækka sviðið með háum baktjöldum og hallandi gólfi. Á hvort tveggja var listilega [...]

Mala domestica

2019-06-04T08:45:08+00:002. mars 2014|

Það var söguleg stund í gærkvöldi í margra huga þegar fagnað var innilega í fullum Eldborgarsal Hörpu frumsýningu íslenskrar óperu í fullri lengd um sögulegt íslenskt efni. Söngvurunum í Ragnheiði var tekið með kostum og kynjum í uppklappinu, einkum Elmari Gilbertssyni sem söng hlutverk Daða Halldórssonar, Þóru Einarsdóttur sem söng titilhlutverkið og Viðari Gunnarssyni sem [...]