Þú ert hér://Tag: Eggert Þorleifsson

Örlagasinfónía Heddu Gabler

2019-08-24T13:17:42+00:0011. mars 2011|

Kristín Eysteinsdóttir leggur áherslu á tímaleysi í uppsetningu sinni á Heddu Gabler í Þjóðleikhúsinu. Þýðing Bjarna Jónssonar er afar áheyrileg en líka algerlega úr nútímanum – til dæmis orðtak Jörgens Tesman eiginmanns Heddu sem er svo skemmtilega notað í verkinu: pældu í því. Svið Finns Arnars er sannarlega ekki sú borgaralega stofa sem Heddu finnst [...]

“Hörmungatímum við hljótum að gera skil”

2019-08-24T15:02:11+00:0027. desember 2010|

Eiginlega er Lér konungur ómögulegt leikrit, rosalega langt og flókið og snýst mest um óyndisleg efni eins og valdabaráttu, heimsku, svik, geðveiki og ofbeldi. Það byrjar á því að gamall kóngur útfærir einstaklega vonda hugmynd sína: að gefa dætrum sínum þremur landsvæði í hlutfalli við ástina sem þær segjast bera til hans. Svo er honum [...]

Glæpasaga úr Hlíðunum

2020-01-30T11:55:58+00:0028. febrúar 2010|

Það sem Bragi Ólafsson gerir svo snilldarlega í verkum sínum, skáldsögum og leikritum, er að leiða mann inn í aðstæður sem eru raunsæjar og eðlilegar og vinna með þær, á máta sem freistandi er að kalla ofur-raunsæjan, þangað til þær verða óbærilegar. Um leið og viðtakandi hlær geðveikislega fer honum að líða illa; hann fer [...]

Má ég fá meira?

2020-01-30T15:39:13+00:0027. desember 2009|

Á fjölmennum leiksýningum eins og Oliver! grípur mann sú tilfinning að einmitt til slíks brúks hafi leikhús verið hugsað: til að fylla sviðið af fólki, lífi og fjöri. Þegar barnahópurinn þrammaði inn í borðsal fátækrahælisins í upphafi frumsýningar í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi og raðirnar ætluðu engan endi að taka þá fylltist ég öryggistilfinningu, þetta yrði [...]

Völvan og Brennuvargarnir

2020-01-31T14:56:29+00:0024. október 2009|

Það var í óvænt gjöf að fá að sjá kvöld eftir kvöld nýjustu sýningar Þjóðleikhússins, einleikinn Völvu sem sýndur er í Kassanum og Brennuvargana eftir Max Frisch sem spóka sig á stóra sviðinu. Báðar eru sýningarnar vandaðar, einstaklega fallegar – og áhrifamiklar. Völva byggir á sjálfri Völuspá, eldfornu kvæði sem allir íslenskir framhaldsskólanemar kynnast enn [...]

Ég elska hana, hún elskar annan mann

2020-01-31T15:44:55+00:0015. mars 2009|

Þrettándakvöld er eitt alskemmtilegasta leikrit Vilhjálms Shakespeare, hryllilega fyndið og fyndnin þar að auki af mörgum tegundum. Þar ber erótíska fyndni hæst en líka er meinleg fyndni áberandi, misskilningsfyndni, kynusli eins og hann gerist fyndnastur hjá þessum yndislega höfundi og svona mætti lengi halda áfram að telja. Þetta verk hefur maður séð í mörgum uppsetningum og [...]

Hinn eiflífi maður

2019-04-03T15:10:15+00:002. nóvember 2008|

Nýtt verk Sigurðar Pálssonar, Utan gátta, sem er sýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu, hefur fengið virkilega fín viðbrögð gagnrýnenda eins og það á skilið. Þetta er dásamlegt verk, fyndið og furðulegt en sýnir okkur samt ofan í regindjúp mannlegrar reynslu, án þess að rembast nokkurn tíma. Að óreyndu hefði ég ekki ímyndað mér að hægt væri [...]