Þú ert hér://Tag: Charlotte Bøving

Myndir af skuggahliðinni

2019-09-28T12:23:00+00:0028. september 2019|

Leikhópurinn RaTaTam frumsýndi í gærkvöldi verk sitt HÚH! Best í heimi á litla sviði Borgarleikhússins undir stjórn Charlotte Bøving. Þar skoða þau sjálfsmynd Íslendinga í gegnum sögur úr eigin lífi og sínar eigin sjálfsmyndir og eru ekki miskunnsöm í sinn garð eða okkar hinna. Við erum kannski glæsileg á að líta, vel klædd, glaðleg í [...]

„Mamma deyr og pabbi deyr og þú deyrð líka síðar meir“

2019-03-12T16:56:54+00:0025. janúar 2019|

Þessi glaðlega hending hér fyrir ofan er úr frumsömdu vöggukvæði eftir Charlotte Bøving sem hún syngur í uppistandssýningu sinni Ég dey á Nýja sviði Borgarleikhússins um þessar mundir. Þar fjallar hún um dauðann á ótrúlega margvíslegan hátt á ekki lengri kvöldstund, fræðilega og persónulega. Aðstoð við að leikstýra sjálfri sér fær hún frá Benedikt Erlingssyni [...]

Ást á rauðum klæðissúlum

2019-03-15T16:38:45+00:0010. febrúar 2018|

„Einu sinni var stelpa sem var alltaf með tilfinningar. Hún var beinlínis að springa úr tilfinningum, sendi þær í allar áttir og notaði þær mest til að verða skotin í strákum og svoleiðis fuðraði hún upp í ást og losta …“ Þetta er upphaf lokaljóðsins í Galdrabók Ellu Stínu eftir Elísabetu Jökulsdóttur frá 1993 og [...]

… stundum er það líka verst

2019-05-03T17:01:34+00:0022. október 2016|

„Stundum er heima best, en stundum er það líka verst,“ söng Guðmundur Ingi Þorvaldsson háum karlaróm, sitjandi á hlálega litlum stól uppi á barborðinu, þegar gestir komu á frumsýningu Suss! í Tjarnarbíó í gærkvöldi. Stundum tóku meðleikarar hans undir og smám saman fékk hann fleiri og fleiri frumsýningargesti með sér í viðlagið: „Heimilisofbeldi er mannréttindabrot, [...]

Að taka síma í fóstur

2019-05-08T10:03:10+00:0024. maí 2016|

Það er alltaf gaman að fá að kynnast nýjum eða nýlegum erlendum leikverkum eftir okkur áður ókunna höfunda. Ekki er verra þegar eins vel tekst til með uppsetninguna og hjá Charlotte Bøving í gærkvöldi þegar leikritið Sími látins manns var frumsýnt í Tjarnarbíó. Það verk er að vísu að verða tíu ára (frumsýnt í Washington [...]

Lífið er drullumall

2019-05-27T13:19:28+00:0018. október 2014|

Það fer margt um huga fullorðinnar manneskju undir sýningu Tíu fingra á Lífinu sem var frumsýnd í dag í Tjarnarbíó undir stjórn Charlottu Bøving. Sköpunarsaga biblíunnar er nærri og þróunarkenning Darwins sækir svolítið á mann þegar dýrategundirnar sækja fram hver af annarri en mest hreiðraði þó um sig í huga mínum gamla snilldarþýðingin hans Magnúsar [...]

Lífið er absúrdleikrit

2019-06-04T08:49:23+00:001. mars 2014|

Oft er talað um að erfitt sé fyrir skáld og rithöfunda að koma með verk númer tvö ef fyrsta verk þeirra hefur tekist sérstaklega vel. Nú er Auður Ava Ólafsdóttir auðvitað reyndur og margverðlaunaður höfundur en Svanir skilja ekki sem var frumsýnt í Kassanum í gær er bara annað leikrit hennar og það fyrra, Svartur [...]

Píkur fimm á palli inni

2019-06-12T14:46:21+00:0019. október 2013|

Það er svo góður gangur í sýningum Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu að til vandræða horfir. Því hefur leikhússtjórinn nú komið sér upp annexíu í Gamla bíói þar sem frumsýnd var í gærkvöldi uppsetning Kristínar Jóhannesdóttur áKristín Jóhannes eftir Federico Garcia Lorca, í nýrri þýðingu Jóns Halls Stefánssonar, á ísköldu, álklæddu og stórfenglegu sviði Brynju Björnsdóttur. [...]

Kona, þekktu sjálfa þig

2019-06-12T15:56:05+00:0019. apríl 2013|

Það eru orðin rúm þrjátíu ár síðan ég sat í góðum hópi kvenna og þýddi og staðfærði danska fræðiritið Kvinde kend din krop. Hugsa sér að svona langur tími skuli vera liðinn! Danir hafa verið duglegri en við að halda þessari frábæru bók við; þar er hún uppfærð reglulega en hér hefur hún ekki komið [...]

Stóri bróðir lærir að verða stór

2019-08-08T17:12:23+00:0018. febrúar 2012|

Helga Arnalds brúðulistakona með meiru sýnir nú í kjallara Norræna hússins leikritið Skrímslið litla systir mín undir stjórn Charlotte Bøving sem líka samdi handritið með Helgu. Sagan sem hún segir er alltaf að gerast en er samt alltaf ný og aldrei alveg eins og vekur ævinlega jafnsterk viðbrögð hjá öllum viðkomandi: Barn eignast systkini. Í [...]