Þú ert hér://Tag: Börkur Jónsson

Spilaborg rís og fellur

2019-09-05T22:26:59+00:0024. september 2010|

Borgarleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi leikritið Enron eftir Lucy Prebble, „heitasta leikritið í heiminum í dag“, eins og leikhúsið auglýsir. Þetta er vissulega tímabært stykki, en við erum svo heppin að hafa fengið okkar eigin hrunleikrit – verk eins og Þú ert hér, Ufsagrýlur og Góðir Íslendingar, fyrir nú utan það sjónarspil sem veruleiki okkar er [...]

Ókindin á háaloftinu

2019-09-05T23:04:06+00:0027. ágúst 2010|

Nú þegar Vesturport tekur upp á ný sýningu sína á Hamskiptunum í Þjóðleikhúsinu rifjar tmm.is upp umsögn Silju Aðalsteinsdóttur sem birtist á vefnum 28. september 2007.  Þetta er magnþrungin sýning og fagnaðarefni að hún skuli tekin upp að nýju fyrir þá sem ekki áttu þess kost að sjá hana þá … Það rann ekki skýrt [...]

Glæpasaga úr Hlíðunum

2020-01-30T11:55:58+00:0028. febrúar 2010|

Það sem Bragi Ólafsson gerir svo snilldarlega í verkum sínum, skáldsögum og leikritum, er að leiða mann inn í aðstæður sem eru raunsæjar og eðlilegar og vinna með þær, á máta sem freistandi er að kalla ofur-raunsæjan, þangað til þær verða óbærilegar. Um leið og viðtakandi hlær geðveikislega fer honum að líða illa; hann fer [...]

Heim til mömmu

2020-01-30T16:02:20+00:002. nóvember 2009|

Ég játa að ég fylgist með framhaldsþáttunum Dirty Sexy Money í Sjónvarpi allra landsmanna. Þetta er hárbeitt háð um fólkið sem mörg okkar öfunda, ríkasta fólkið í hinum vestræna heimi, sorgir þess og gleði – aðallega sorgir náttúrlega – vel skrifaðir og ágætlega leiknir, sambærilegir að ýmsu leyti við þá dásamlegu grínþætti Aðþrengdar eiginkonur. Þarna [...]

Hungur og gredda

2020-01-31T16:10:28+00:0031. janúar 2009|

Það greip mig óvænt tilfinning að lokinni sýningu á Rústað eftir Söruh Kane á Nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi: ég fann að ég var þakklát. Fyrir hvað? hugsaði ég hissa. Fyrir að horfa á manneskjur gera öðrum manneskjum mein? Nei, öllu heldur fyrir að sýna mér bakhliðina á fréttunum sem við lesum og heyrum á hverjum degi, [...]