Þú ert hér://Tag: Borgarleikhúsið

„Hjálpaðu mér að lifa nóttina af“

2019-05-22T11:54:27+00:0011. janúar 2015|

Aðstandendur Hunds í óskilum, fjölhæfu grínistarnir Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur G. Stephensen, byrja nýju revíuna sína, Öldina okkar, á því að koma manni rækilega á óvart. Þeir flytja textann hans Kris Kristoffersonar, Help me make it through the night, undir fornu rímnalagi. Fyrir utan að vera morðfyndið atriði geymir textinn auðvitað gott mottó fyrir grín [...]

Nóra, Nóra

2019-08-24T13:41:42+00:0031. desember 2014|

Dúkkuheimili Hörpu Arnardóttur á stóra sviði Borgarleikhússins er án nokkurs vafa ein skemmtilegasta uppsetning á leikriti Ibsens sem ég hef séð. Ég hef séð róttækari uppsetningu (Thomas Ostermeier á Schaubühne í Berlín sem líka var látin gerast í samtíma okkar) og klassískari uppsetningu (Ingmar Bergman í Konunglega í Köben) en Anne Tismer og Pernilla August [...]

Feður og sonur

2019-05-22T13:51:09+00:001. nóvember 2014|

Það var mikið hlegið í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi á frumsýningu farsans Beint í æð. Þar var farið yfir versta daginn í lífi Jóns Borgars (Hilmir Snær Guðnason), taugasérfræðings og yfirlæknis á Landakoti, en Gísli Rúnar Jónsson hefur þýtt og staðfært verk Rays Cooney, It runs in the family. Leikstjóri er Halldóra Geirharðsdóttir sem hefði líka [...]

Karlafræðarinn

2019-05-27T13:18:53+00:006. október 2014|

Huldar Breiðfjörð virðist hafa sett sér það verkefni að kafa í sálarlíf íslenskra karla og athuga hvað hann kemur upp með. Nýséð (tvisvar í mínu tilviki) er kvikmyndin París norðursins þar sem fjórir karlmenn eru undir misnákvæmri smásjá (og einn karlmaður in spe á hliðarlínunni) og í gær sáum við Gauka á Nýja sviði Borgarleikhússins [...]

Drengur með náragáfu

2019-05-27T13:25:49+00:0029. september 2014|

Við sáum Kenneth Mána í gærkvöldi, einleik Björns Thors eftir handriti Jóhanns Ævars Grímssonar, Sögu Garðarsdóttur og Björns sjálfs, á litla sviði Borgarleikhússins. Bergur Þór Ingólfsson stýrir. Það er kannski ýmislegt ósennilegt við þennan karakter, einkum virðist geðslag hans og greindarstig ekki passa við það að hann skuli vera svona afkastamikill þjófur, en auðvitað getur [...]

Lína lifir

2019-05-27T13:56:23+00:0014. september 2014|

Það er ekki dregið úr því í sýningu Leikfélags Reykjavíkur á Línu Langsokk, sem var frumsýnd á stóra sviði Borgarleikhússins í gær, hvað Lína er ósvífin stúlka. Og fer ákaflega vel á því að láta Ágústu Evu Erlendsdóttur leika hana því allir muna ennþá hvernig hún kom eins og sprengja inn í íslenskan samtíma sem [...]

Fegurðin ríkir ein

2019-05-27T16:34:15+00:0030. maí 2014|

Ég hef beðið spennt eftir því að fá að sjá verk Ragnars Kjartanssonar og Kjartans Sveinssonar, Kraftbirtingarhljóm guðdómsins (Der Klang der Offenbarung des Göttlichen) alveg síðan ég las upphafna lýsingu Einars Fals Ingólfssonar á því í Morgunblaðinu í febrúar þegar verkið var frumsýnt í Berlín. Biðinni lauk í gærkvöldi í Borgarleikhúsinu. Þó að ég hefði [...]

Ár englanna og ofurfóstrunnar

2019-04-03T15:16:23+00:0022. apríl 2014|

Leikhúsárið 2013 Eftir Silju Aðalsteinsdóttur Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2014 Hvernig var leikhúsárið 2013 í Reykjavík? Eitthvað sérstaklega minnisstætt – fyrir hvað það var gott, merkilegt, nú, eða vont? Á einkalista mínum kemur í ljós að mér hafa þótt þrjár sýningar mjög áhrifamiklar, þrjár afspyrnuvondar og afgangurinn þar á milli, er það [...]

Sagan af pabba

2019-06-04T08:26:16+00:0012. apríl 2014|

Valur Freyr Einarsson vill segja sögur á leiksviðinu, mikilvægar sögur, sögur sem skipta máli. Sagan hans um eina „svarta barnið“ á Suðurnesjum í verðlaunasýningunni Tengdó var bæði brýn og óvænt og hafði sterka skírskotun til samtímans. Sagan sem hann segir í Dagbók jazzsöngvarans, sem CommonNonsense frumsýndi á nýja sviði Borgarleikhússins í gær undir stjórn Jóns [...]

Hamlet light

2019-05-28T00:14:08+00:0012. apríl 2014|

Ég komst að því þegar ég var búin að bjóða föstum félaga mínum á barnsaldri á Hamlet litla í Borgarleikhúsinu að sýningin væri ætluð ellefu ára börnum og eldri. Félagi minn er sex ára. En ég gat ekki svikið hann, leikhús er hans líf og yndi, og ég sá ekki betur en hann héldi athygli [...]