Þú ert hér://Tag: Björk Níelsdóttir

Ólæknandi harmur Dídó drottningar

2025-07-14T12:38:26+00:0014. júlí 2025|

Lokaatriðið á Sumartónleikum í Skálholti að þessu sinni var leikrænn flutningur á óperunni Dido & Aeneas eftir enska 17. aldar tónskáldið Henry Purcell. Samkvæmt inngangsorðum Benedikts Kristjánssonar, listræns stjórnanda Sumartónleikanna, var þetta í fyrsta skipti sem ópera var flutt í Skálholtskirkju og af því tilefni var kirkjubekkjum raðað eftir endilöngu kirkjuskipinu með breiðum gangvegi í [...]

Holdið er torvelt að temja

2025-02-07T14:31:09+00:007. febrúar 2025|

Það er óperuhátíð í Reykjavík. Þrjár óperur, tvær gamlar, ein ný, eru nú sýndar í þrem húsum í höfuðstaðnum. Svo skemmtilega vill til að þær fjalla allar meira og minna um sama fólkið og eins og það sé ekki nóg þá tengjast sýningarnar innbyrðis á hinn skondnasta máta: aðaldívan í einni er hljómsveitarstjóri í annarri, [...]

Eltum sjúklingana

2024-11-04T10:00:33+00:004. nóvember 2024|

Ég varð djúpt snortin á sýningu Óperudaga á Gleðilega geðrofsleiknum eftir Guðmund Stein Gunnarsson sem Sibylle Köll stjórnar. Umhverfið hafði sín áhrif. Sýningin var sett upp í MR, gamla menntaskólanum mínum, og þó að hún byrjaði á Sal og þættist ætla að vera venjuleg sýning fyrir sitjandi áhorfendur þá entist það ekki nema á að [...]

Ég á gull að gjalda – en gráta ekki má

2022-09-30T14:24:07+00:002. september 2022|

Ævintýraóperan Mærþöll eftir Þórunni Guðmundsdóttur – bæði texti og tónlist – var frumsýnd í Gamla bíói í gærkvöldi. Ég hef áður séð nokkrar gamanóperur Þórunnar, byggðar á þjóðararfinum, og þær hafa allar verið eftirminnilega skemmtilegar, textinn vel ortur og fyndinn og tónlistin vel samin og aðlaðandi í klassískum og þjóðlegum stíl án þess kannski að [...]

Skuldadagar

2022-09-30T14:25:08+00:0020. ágúst 2022|

Það er býsna djarft að skíra óperu eftir þögninni, fátt virðist óskyldara en þær tvær. En þetta gera Árni Kristjánsson handritshöfundur og Helgi Rafn Ingvarsson tónskáld því ný ópera þeirra, sem var frumsýnd í Tjarnarbíó í gærkvöldi undir stjórn höfundanna og á vegum sviðslistahópsins Hófstillt og ástríðufullt, heitir einfaldlega Þögnin. Það er ekki bókstafleg þögn [...]

Hring eftir hring

2021-01-11T16:48:56+00:009. janúar 2021|

Þó að litla svið Borgarleikhússins væri ekki setið nema til hálfs eða svo vegna Covidsins minnti kliðurinn samt meira en lítið á fuglabjarg áður en ljósin slokknuðu. Það átti vel við því í vændum var frumsýning á nýrri óperu eða tónleikhúsi fyrir börn, Fuglabjarginu eftir Birni Jón Sigurðsson (handrit), Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur og Ragnheiði Erlu [...]

Sungið um feðginasamband og plast

2019-03-13T16:20:07+00:0025. október 2018|

Áður en ég hlýddi á Plastóperuna eftir Gísla Jóhann Grétarsson og Árna Kristjánsson með fimmta bekk Laugarnesskóla í gærmorgun var ég viðstödd morgunsönginn í skólanum með öllum börnunum – í fyrsta skipti síðan ég kvaddi þennan skóla fyrir sextíu og einu ári! Þau sungu skólasönginn (sem var ekki til í minni tíð) og tvö falleg [...]