Þú ert hér://Tag: Birnir Jón Sigurðsson

Breytingin er eini fastinn

2025-02-04T16:19:37+00:001. febrúar 2025|

Það mætti halda að Marmarabörn hefðu verið að hugsa um nýliðið ár þegar þau skírðu sýninguna sína Árið án sumars, alla vega eins og það blasti við okkur hér á suðvesturhorninu. En þau voru búin að hugsa þennan titil æði lengi áður en kom að því ári, enda eru þau með í huga sumarið 1816 [...]

Ferðalag um harmaheima

2024-09-22T20:36:45+00:0022. september 2024|

Fyrir ári hóf Birnir Jón Sigurðsson leikárið í Tjarnarbíó með sínu bráðskemmtilega verki Sund sem raunar fær framhaldslíf í Þjóðleikhúsinu á þessu leikári. Og í gærkvöldi hófst nýtt leikár í Borgarleikhúsinu með nýju verki eftir hann, Sýslumanni Dauðans sem sýnt er á Nýja sviði. Leikstjóri er Stefán Jónsson. Mirek Kaczmarek hannar dularfullt og lengst af [...]

Hring eftir hring

2021-01-11T16:48:56+00:009. janúar 2021|

Þó að litla svið Borgarleikhússins væri ekki setið nema til hálfs eða svo vegna Covidsins minnti kliðurinn samt meira en lítið á fuglabjarg áður en ljósin slokknuðu. Það átti vel við því í vændum var frumsýning á nýrri óperu eða tónleikhúsi fyrir börn, Fuglabjarginu eftir Birni Jón Sigurðsson (handrit), Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur og Ragnheiði Erlu [...]

Fimm fræknir á hraðnámskeiði í skattsvikum

2020-03-17T17:17:21+00:0013. mars 2020|

Það fór fram merkileg kennslustund í salnum á þriðju hæð Borgarleikhússins í gærkvöldi. Þar freistuðu félagarnir fimm í leikhópnum Ást og karókí þess að kenna áhorfendum að svíkja undan skatti með því að koma peningunum sínum fyrir í skattaskjóli. Afleitt efni í leiksýningu? Annað kom á daginn! Sýningin Skattsvik Development Group hefst á símtali um [...]

Af kartöflunni Helgu

2019-10-29T16:01:45+00:0025. október 2019|

Leikhópurinn CGFC og tónlistarmaðurinn Halldór Eldjárn frumsýndu í gærkvöldi verkið Umbúðalaust – Kartöflur í sal á þriðju hæð Borgarleikhússins. Ég hef ekki grænan grun um fyrir hvað stafirnir CGFC standa en meðlimirnir eru fjórir, Arnar Geir Gústafsson, Birnir Jón Sigurðsson, Hallveig Kristín Eiríksdóttir og Ýr Jóhannsdóttir. Kartöflur / Mynd: Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir Verkefnið [...]

Mamma hetja í stríðinu

2019-05-22T10:33:45+00:0017. maí 2019|

Listaháskólinn hefur staðið fyrir mikilli leikhúsveislu undanfarið því útskriftarnemendur á sviðshöfundabraut hafa frumsýnt tíu verk víðsvegar í Reykjavík í maímánuði auk þess sem nýju leikararnir frumsýndu Mutter Courage eftir Bertolt Brecht norður á Akureyri í þýðingu Ólafs Stefánssonar og undir stjórn Mörtu Nordal. Þau frumsýndu svo aftur í Kassa Þjóðleikhússins í gærkvöldi. Mér tókst ekki [...]

„Eins og brú yfir ólgandi flaum“

2019-04-30T14:01:30+00:004. júní 2017|

Það var ansi skemmtilegt að sjá strákana í leikhópnum Ást og karókí fjalla um karlhlutverkið og karlmennskuna svo skömmu á eftir Reykjavíkurdætrum fjalla um kvenlegt hlutskipti í Borgarleikhúsinu. Piltarnir eru ekki komnir eins hátt á strá og stúlkurnar en þeir hafa þó fengið inni fyrir verk sitt, Sýningu um glímu og Slazenger, hjá Leikfélagi Kópavogs [...]

La donna e mobile

2019-05-10T14:21:56+00:0020. desember 2015|

Í Sýningu um ást og karókí sem þrír nemendur í sviðslistadeild Listaháskóla Íslands frumsýndu í húsnæði skólans í gær undirbýr Adolf Smári Unnarsson, Dolli, trúlofun sína og Dísu, skólasystur sinnar. Adolf Smára hef ég séð nokkrum sinnum áður í Stúdentaleikhúsinu og er alveg himinlifandi yfir því að hann skuli ætla að leggja þetta starf fyrir [...]

Ungt og leikur sér

2019-05-10T14:48:34+00:0011. nóvember 2015|

Við fórum í fyrsta skipti á Ungleik í Borgarleikhúsinu í gær og fannst satt að segja talsvert til um þá reynslu. Þarna voru leikin fimm stutt verk eftir jafnmarga höfunda, leikararnir og leikstjórarnir voru úr sama áhugamannahópnum um leiklist og það er mikils að vænta af þessu unga og ástríðufulla fólki. Fyrsta verkið, Sýslumaðurinn í [...]

Doktor Fástus yngdur upp

2019-06-18T11:25:05+00:0013. mars 2013|

Þau ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur MR-ingarnir sem nú sýna Doktor Fástus í myrku ljósi í Tjarnarbíó. Þetta er um það bil 75 ára gamalt verk eftir bandaríska framúrstefnuhöfundinn Gertrud Stein og þar eru sannarlega ekki farnar beinustu leiðir að efninu en það varð dillandi skemmtilegt hjá krökkunum undir hugmyndaríkri stjórn [...]