Þú ert hér://Tag: ArtFart

Sköpunarverkið

2020-01-24T15:19:41+00:0020. ágúst 2010|

Maður kemur inn á sviðið með annan mann eins og hveitisekk yfir öxlina og losar sig við byrði sína ofan í baðkar á sviðinu Í kerinu er vatn sem maðurinn eys nú yfir þann sem situr í kerinu. Smám saman verður ljóst að sá sem í baðinu situr er leir sem maðurinn er að móta. [...]

Hin máttuga sagnalist

2020-01-24T15:39:14+00:0016. ágúst 2010|

Það var merkileg sögustund sem áhorfendur áttu með Árna Kristjánssyni á ArtFart síðdegis í dag í Útgerðinni við Grandagarð. Hann notaði enga leikmuni nema einn stól, engan búning eða gervi, bara eigin rödd og líkama. Þar að auki var hann að segja okkur sögu sem hann hafði upplifað sjálfur í fyrra þegar hann vann á [...]

Nýgræðingar á vakt

2020-01-24T16:18:38+00:0015. ágúst 2010|

Það skemmtilega við ArtFart er náttúrlega það óvænta. Til dæmis var erfitt að vita hver nákvæmlega var að leika og hvenær á Fjöltengigjörningnum á BSÍ í gær. Og einmitt það atriði sem allir voru vissir um að væri partur af leiknum – þegar beri maðurinn með græna bindið kom og keypti sér gos – það [...]

Eins og Hollywoodkvikmynd – bara betra

2020-01-24T15:49:34+00:0012. ágúst 2010|

Sviðslistahátíðin ArtFart er hafin þótt ekki fari mikið fyrir henni í hinum venjulegu miðlum. Kannski finnst öllum sjálfsagt að Netið sjái um að kynna og auglýsa slíkt nú á dögum – enda eru það ábyggilega bara risaeðlur sem ekki eru á Facebook. Hátíðin er haldin á mörgum stöðum í bænum og stendur til 22. ágústs [...]

Átök á háaloftinu

2020-01-30T16:54:58+00:0026. ágúst 2009|

Það fylgdi því ekta sælutilfinning – auk ávænings af dejavu – að príla upp á háloft í Batteríinu í gær til að fara á leiksýningu. Minnti á góða gamla daga í London á áttunda áratugnum þegar maður staulaðist upp og niður margan hænsnastigann í leit að sannri upplifun. Oftar en ekki fannst hún. Og í [...]