Þú ert hér://Tag: Arnar Ingvarsson

Stefnumót í Kópavogi

2024-03-25T11:46:05+00:008. mars 2024|

Sá dásamlegi listamaður og leikari Árni Pétur Guðjónsson fær leikfélaga við hæfi í sýningunni … og hvað með það sem var frumsýnd í Leikhúsinu í Kópavogi (Funalind 2) í gærkvöldi. Þetta er samsköpunarverkefni, samið af Rúnari Guðbrandssyni leikstjóra, Árna Pétri sjálfum og leikfélaganum, Sigurði Edgar Andersen, dansara og boylesque-listamanni. Arnar Ingvarsson sér um ljós og [...]

Veslings Marat

2023-02-08T16:12:40+00:0027. janúar 2023|

Áhorfendum á Marat/Sade í Borgarleikhúsinu er boðið upp á tvær snilldarhugmyndir. Önnur er beinlínis leikritið sjálft, Marat/Sade eða ofsóknin og morðið á Jean Paul Marat sýnt af vistmönnum geðveikrahælisins í Charenton undir stjórn de Sade markgreifa eftir þýska leikskáldið Peter Weiss. Það er varla hægt að hugsa sér geggjaðri hugmynd en að horfa á frönsku [...]

Trúðslæti um ást og missi

2022-10-12T15:56:18+00:0010. október 2022|

Við fórum loksins í Tjarnarbíó í gærkvöldi og sáum Hið stórfenglega ævintýri um missi eftir Grímu Kristjánsdóttur sem einnig leikur bæði hlutverkin, sjálfa sig og hliðarsjálfið Jójó trúð. Með henni á sviðinu er tónlistarmaðurinn Þórður Sigurðarson og einnig tekur virkan þátt í sýningunni ljósameistarinn Arnar Ingvarsson. Ég er ekki frá því að það staka atriði [...]

„Og hér ertu þá aftur … Kvíðinn sjálfur …“

2019-04-30T14:29:34+00:0019. apríl 2017|

Kvíði er merkilegt fyrirbæri, svo nauðsynlegur manneskjunni en þó svo leiðinlegur, og vel gert hjá leikhópnum SmartíLab að búa til um hann leiksýningu sem sýnir, fræðir og örvar til baráttu. Hún heitir Fyrirlestur um eitthvað fallegt og er sýnd í Tjarnarbíó undir stjórn Söru Martí. Á snjöllu sviði Brynju Björnsdóttur er stór málmgrind að kúluhúsi [...]

… stundum er það líka verst

2019-05-03T17:01:34+00:0022. október 2016|

„Stundum er heima best, en stundum er það líka verst,“ söng Guðmundur Ingi Þorvaldsson háum karlaróm, sitjandi á hlálega litlum stól uppi á barborðinu, þegar gestir komu á frumsýningu Suss! í Tjarnarbíó í gærkvöldi. Stundum tóku meðleikarar hans undir og smám saman fékk hann fleiri og fleiri frumsýningargesti með sér í viðlagið: „Heimilisofbeldi er mannréttindabrot, [...]

Að gæta bróður síns

2020-01-24T16:24:24+00:002. maí 2010|

Það var virkilega gaman að koma í Norðurpólinn, nýja leikhúsið á Seltjarnarnesi í gær. Alltaf er gaman þegar leiklistin fær nýjan vettvang og ekki dregur úr ánægjunni þegar hann er eins aðlaðandi og Norðurpóllinn: Geysistór forsalur með bar, mjúkum sófum og gömlum Sunnudagsblöðum Tímans (!) til að kíkja í meðan beðið er sýningar, tveir miðlungsstórir [...]