Þú ert hér://Tag: Arnar Dan Kristjánsson

Hlægilega sorglegur Tsjekhov

2020-01-12T12:13:31+00:0012. janúar 2020|

Nýjárs- og afmælissýning Leikfélags Reykjavíkur, Vanja frændi eftir Anton Tsjekhov, var frumsýnd í gærkvöldi á stóra sviði Borgarleikhússins undir stjórn Brynhildar Guðjónsdóttur. Gunnar Þorri Pétursson þýddi verkið á tilgerðarlausa, auðskiljanlega og fallega íslensku og öll textavinna í sýningunni var aðdáunarverð. Sú einkunn átti sannarlega við fleira. Við erum stödd á sveitasetri Aleksanders Serebrjakovs prófessors í [...]

Stundum verður maður að vera óþekkur

2019-05-21T14:52:57+00:0016. mars 2019|

Borgarleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi á stóra sviðinu söngleikinn Matthildi eftir Roald Dahl (saga), Dennis Kelly (leiktexti) og Tim Minchin (tónlist og söngtextar) í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir af sínu alþekkta öryggi, tónlistarstjóri er Agnar Már Agnarsson og Lee Proud semur dansana eins og viðbúið var. Þetta er gríðarmikið sjónarspil á einhverri [...]

Níðingslega lifandi Shakespeare

2019-06-13T18:20:18+00:0030. desember 2018|

Það segir sitt um álit manna og áhyggjur af ástandi heimsins að jólasýningar beggja stóru leikhúsanna skuli fjalla um viðurstyggð harðstjórnar. Í Þjóðleikhúsinu er skopast að Adolf Hitler en í Borgarleikhúsinu er rifjað upp rúmlega 400 ára gamalt leikrit Shakespeares um Ríkharð þriðja, kroppinbakinn sem myrti sér leið til konungdóms á Englandi. Brynhildur Guðjónsdóttir leikstýrir [...]

„Sykurhúðað, sýrubaðað, sjabbí sjóv“

2019-05-08T10:40:06+00:0017. mars 2018|

Söngleikurinn Rocky Horror Show eftir Richard O‘Brien var frumsýndur í gærkvöldi á stóra sviði Borgarleikhússins undir stjórn Mörtu Nordal. Fyrirfram hefði ég ekki haldið að þetta verkefni væri hennar tebolli, það virðist býsna óskylt sýningunum sem hún er rómuð og jafnvel verðlaunuð fyrir – eins og Fjalla-Eyvindi, Ofsa og Lúkas – en það gekk líka [...]

Afturgengin ást

2019-05-10T09:47:50+00:0014. febrúar 2018|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gær um það bil tvö þúsund og fimmhundruð ára ára klassík, Medeu eftir Evripídes, á nýja sviði Borgarleikhússins undir stjórn Hörpu Arnardóttur. Leikritið segir harmsögu hinnar goðkynjuðu Medeu sem fórnar bróður, föður og föðurlandi fyrir ástina og hefnir sín á grimmúðugasta hátt þegar hún sjálf er svikin af ástinni. Í nýrri [...]

„Mamma mía, enn og aftur …“

2019-05-08T15:57:36+00:0012. mars 2016|

Unnur Ösp Stefánsdóttir leikstjóri og hennar einvalalið frumsýndu söngleikinn Mamma mia á stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi við nánast stöðug fagnaðarlæti. Hver manneskja í salnum nauðaþekkti auðvitað þetta verk, ef ekki af sviði þá úr bíó, auk þess sem lögin hafa hljómað áratugum saman í eyrum okkar. Þó verður maður aldrei leiður á þeim. Og [...]

Sjómannslíf, sjómannslíf

2019-05-27T15:31:03+00:0020. júlí 2014|

Tjarnarbíó býður um þessar mundir listamönnum í borginni fín tækifæri til að sýna eigin verk við góðar aðstæður – í vel búnu leikhúsi með góðum sætum fyrir gesti. Það er gaman að koma í húsið, jafnvel þótt maður sé ekki á leið í leikhús, þar er veitingasala með mat og drykk og góður andi eins [...]

Um hunda og menn

2019-06-04T08:33:15+00:0014. mars 2014|

Stundum er forvitnilegt að fara á leiksýningu þegar margir eru búnir að tjá sig um hana, einkum ef þeir eru ekki sammála, og bera eigið mat saman við mat hinna. Gagnrýnendur Djöflaeyjunnar voru til dæmis ekki hrifnir af Furðulegu háttalagi hunds um nótt í Borgarleikhúsinu en Hlín Agnarsdóttir gaf fjórar og hálfa stjörnu í DV, [...]

Refaveiðar

2019-06-12T12:25:48+00:0017. nóvember 2013|

Dystópíur eru í tísku um þessar mundir – skáldverk þar sem lýst er illum heimi og engin eða lítil von framundan. Nægir að minna á Hungurleikana vinsælu og benda á að nokkrar bækur koma út á íslensku nú í haust, bæði innlendar og þýddar, sem gerast í slíkum vondum heimi. Kannski stafar þetta af umræðum [...]

Drauma-Smiðjan

2019-06-15T15:40:10+00:0024. mars 2013|

Ég fann fyrir tilfinningu eftir sýningu Nemendaleikhússins á Draumi á Jónsmessunótt í Smiðjunni í gærkvöldi sem sumt leikhúsfólk hefur fjölyrt um í ævisögum sínum: ég vildi að sýningin væri ekki búin heldur héldi áfram – eða byrjaði upp á nýtt! Mig langaði ekki til að rjúfa töfrana og fara út úr húsinu. Leikritið er auðvitað [...]