Þú ert hér://elin

About elin

This author has not yet filled in any details.
So far elin has created 875 blog entries.

Að hverju hlæjum við?

2019-08-08T16:28:46+00:0010. mars 2012|

Ég játa að ég tengdi sjaldan við gleðileiki Shakespeares á sýningu Íslensku hreyfiþróunarsamsteypunnar, Úps!, í Tjarnarbíói í gærkvöldi sem Víkingur Kristjánsson stýrir. Jú, vissulega fór Hannes Óli Ágústsson einu sinni í kjól sem gat verið vísun í að á tímum Shakespeares voru kvenhlutverk leikin af körlum, og einu sinni tíndust allir þátttakendur inn á sviðið ... Lesa meira

Sýning ársins

2019-08-08T17:07:58+00:006. mars 2012|

Sýning ársins / Mynd: Björn Snorri Rosdahl Sviðslistahópurinn 16 elskendur skemmtu áhorfendum vel í Borgartúni 6 á sunnudagskvöldið þar sem þau bjuggu til óvænta „leiksýningu“ úr félagsfræðilegri rannsókn. Aðdragandinn var sá að Félagsvísindastofnun HÍ gerði athugun á því í samvinnu við 16 elskendur hvað Íslendingar vilja sjá í leikhúsi. Úr flóknum og margslungnum ... Lesa meira

Beisk barátta ills og góðs

2019-08-08T16:52:22+00:004. mars 2012|

Það var mikið hrópað og klappað í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi að lokinni þriggja tíma maraþonsýningu á Vesalingunum. Enda var ástæða til. Leikhúsið hafði tjaldað til mörgum sínum allrabestu söngkröftum, svið Finns Arnars Arnarsonar var óvænt og áhrifamikið, Tónlistin kom ekki úr hátölurum heldur beint upp úr gryfjunni undir styrkri stjórn Þorvalds Bjarna Þorvaldssonar, búningar Maríu ... Lesa meira

Hlustað eftir andardrætti orðanna

2019-06-28T15:37:42+00:001. mars 2012|

Jón Kalman Stefánsson. Himnaríki og helvíti, Harmur englanna, Hjarta mannsins. Bjartur 2007, 2009, 2012. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2012 Mitt í miklu andstreymi og mannraunum finnur strákurinn, aðalsöguhetjan í trílógíunni Himnaríki og helvíti, Harmur englanna og Hjarta mannsins, lífsþrótt sinn í knýjandi þörf fyrir orð. Ástin á skáldskapnum, þessum heimi innan spjalda ... Lesa meira

Bók hinna glötuðu tækifæra

2019-06-28T15:38:11+00:001. mars 2012|

Íslensk listasaga frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar. Ritstjóri Ólafur Kvaran; höfundar I. bindis Júlíana Gottskálksdóttir og Ólafur Kvaran, II. bindis Gunnar J. Árnason, Hrafnhildur Schram og Æsa Sigurjónsdóttir, III. bindis Ásdís Ólafsdóttir, Hanna Guðlaug Guðmundsdóttir, Jón Proppé, IV. bindis Dagný Heiðdal, Halldór Björn Runólfsson, Laufey Helgadóttir, V. bindis Eva Heisler, Gunnar ... Lesa meira

Hinsegin bækur og menn

2019-06-28T14:28:37+00:001. mars 2012|

Þórður Sigtryggsson. Mennt er máttur: Tilraunir með dramb og hroka. Kaflar úr endurminningum. Vélritað hefur Elías Mar. Omdúrman, 2011. Þorsteinn Antonsson. Þórðargleði: Þættir úr höfundarsögu Elíasar Mar. Sagnasmiðjan, 2011. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2012 Tvær bækur eru til skoðunar sem báðar komu út án þess fyrir þeim væru barðar bumbur og kannski ... Lesa meira

Að grafa leynigöng milli veruleika og drauma

2019-06-28T12:08:20+00:001. mars 2012|

Eiríkur Guðmundsson. Sýrópsmáninn. Bjartur, 2010, 232 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2012 Eiríkur Guðmundsson lýsti skáldsögu sinni Sýrópsmánanum sem „tilfinningalegri rannsóknarskýrslu“ í viðtali við Morgunblaðið 10. nóvember 2010. Lýsingin kallar fram ýmis konar hugrenningatengsl, en fyrst og fremst við hina frægu Rannsóknarskýrslu Alþingis eins og til var ætlast. Skýrslan sú var gefin ... Lesa meira

Þingræði á Íslandi

2019-06-25T09:39:25+00:001. mars 2012|

Ýmsir höfundar. Þingræði á Íslandi – samtíð og saga. Forlagið, 2011. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2012 Þetta er mikið rit, nærri 500 síður, gefið út af Forlaginu en Alþingi kostaði útgáfuna. Ritstjórn önnuðust Ragnhildur Helgadóttir, Helgi Skúli Kjartansson og Þorsteinn Magnússon. Höfundar efnis eru þau Ragnheiður Kristjánsdóttir, aðjúnkt í sagnfræði við Háskóla ... Lesa meira

Glóandi kvika undir hrauni

2019-08-08T17:08:27+00:0025. febrúar 2012|

Það sem Eugene O’Neill vissi svo vel var að tilfinningarnar sem við berum til okkar nánustu eru aldrei neitt eitt, ást, hatur, reiði, öfund, fyrirlitning, heldur flókin blanda af þessu öllu saman. En eitt er að vita og annað að koma í orð og athöfn eins og hann gerir svo snilldarlega í Dagleiðinni löngu sem ... Lesa meira

Vekjum ekki sofandi dreka

2019-04-03T15:20:47+00:0024. febrúar 2012|

Loftslagsmál, pólitísk umræða og olíuleit á íslenska landgrunninu Eftir Guðna Elísson Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2011 Í frétt sem birtist á vef Morgunblaðsins í september 2011 segir frá því að áður „óþekktar olíulindir, sem fundist hafa í norska landgrunninu í Norðursjó, gætu verið 1168 milljarða norskra króna virði en það svarar til ... Lesa meira