Þú ert hér://2016

Ærsl og óreiða í Kúlunni

2019-05-06T15:53:41+00:002. október 2016|

Fyrir nokkru vantaði mig samheiti yfir „ringulreið“ og leitaði í Snöru, orðabókinni á netinu. Meðal margra tillagna þar sá ég orðið „stertabenda“ sem mér fannst sniðugt en einum of einkennilegt til að nota í venjulegum texta. Það er dregið af því þegar stertar hesta lenda í bendu svo þeir festast saman. („Á miðri götunni voru ... Lesa meira

Bandarísk rökkurópera

2019-05-06T16:03:20+00:001. október 2016|

Hún var þrungin þögnin í stóra sal Þjóðleikhússins í gærkvöldi á frumsýningu Horft frá brúnni, og varði þá nærri tvo tíma sem sýningin stóð, án hlés. Einn og einn hósti heyrðist óþægilega vel og sömuleiðis suð í lágt stilltum farsíma, annars var þögnin djúp allan tímann. Þetta varð smám saman alveg magnað. Horft frá brúnni ... Lesa meira

Úr örbirgð til auðæva – og aftur til baka – og baka

2019-05-06T16:28:05+00:0024. september 2016|

Söguloftið á Landnámssetrinu í Borgarnesi hefur hýst marga góða sagnamenn og löngu kominn tími til að rifja upp sögu mannsins sem byggði á sínum tíma húsið sem landnámssýningin, Eglusýningin og Söguloftið eru í, Thors Jensen. Thor var rúmlega tvítugur þegar hann tók við verslunarrekstri í Borgarnesi og tók rækilega til hendinni þau ár sem hann ... Lesa meira

Það er einn hnöttur og hann er blár

2019-05-06T16:20:19+00:0024. september 2016|

„Ég skil bara ekki hvernig þetta er hægt,“ sagði sessunautur minn, séra Ragnheiður, að lokinni frumsýningu á Bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason, Berg Þór Ingólfsson leikstjóra, Kristjönu Stefánsdóttur tónskáld og Chantelle Carey danshöfund á stóra sviði Borgarleikhússins. Hún átti við frammistöðu barnanna í sýningunni, hvernig þau, svona ung, gátu leikið, sungið, dansað, farið flikk ... Lesa meira

Hetjusaga Sóleyjar Rósar

2019-05-06T16:37:52+00:0023. september 2016|

Ég var búin að lesa mikið hrós um Sóley Rós ræstitækni sem Kvenfélagið Garpur sýnir nú í Tjarnarbíó þegar ég loksins sá hana í gærkvöldi. Þrátt fyrir ítarlegar lýsingar á efni og útliti sýningarinnar í umsögnum um hana tókst henni að koma mér rækilega á óvart. Það er fyrst og fremst leikurunum að þakka og ... Lesa meira

Leikið á lofti

2019-05-06T16:47:02+00:0019. september 2016|

Írsk-íslensk samvinna ber fagran ávöxt í Fjaðrafoki, leiksýningu fyrir yngstu áhorfendurna eftir Chantal McCormick og Tinnu Grétarsdóttur sem frumsýnd var í Tjarnarbíó um helgina á vegum Bíbí & blaka og írska sirkusflokksins Fidget Feet. Ég var svo heppin að fá að sjá hana með tveim leikskólabekkjum tveggja til þriggja ára barna núna á mánudagsmorgni og ... Lesa meira

Fíll, fíll, burt með þig!

2019-05-06T17:03:51+00:0017. september 2016|

Brúðuheimar frumsýndu áðan splunkunýtt verk í upphæðum Þjóðleikhússins. Bernd Ogrodnik er þar allt í öllu að venju, leikritið Íslenski fíllinn er eftir hann og Hildi M. Jónsdóttur, hann hannar brúðurnar og leikmyndina, stjórnar brúðunum og semur tónlistina þar að auki. Kraftaverkamaður. Efnið sprettur út úr fréttum undanfarin ár af vegalausu fólki vegna náttúruhamfara af ýmsu ... Lesa meira

Saga manns sem heitir Ove

2019-05-06T16:57:44+00:0017. september 2016|

Skáldsaga sænska rithöfundarins Fredriks Backman, Maður sem heitir Ove, kom fyrst út 2012 og náði fljótlega miklum vinsældum í heimalandi höfundar og miklu víðar. Á íslensku kom hún út strax árið eftir í þýðingu Jóns Daníelssonar og var prentuð sex sinnum á innan við ári. Einleikurinn eftir skáldsögunni sem var frumsýndur í kvöld í Kassa ... Lesa meira

Margt býr í skápunum

2019-05-06T17:09:13+00:0016. september 2016|

Fyrsta tilfinningin sem grípur mann á Sendingu, leikriti Bjarna Jónssonar sem Marta Nordal setur upp á Nýja sviði Borgarleikhússins, er að það sé þrengt að því. Sviðið virkar svo lítið. Og eintóna. Gólf og þrír veggir sem eru samfelldar hurðir á skápum og öðrum herbergjum. En séu hurðir þá er eitthvað fyrir innan þær og ... Lesa meira

Föst á Djöflaeyjunni – engin huggun þar

2019-05-06T17:20:01+00:004. september 2016|

Það var annaðhvort rétt fyrir eða eftir áramótin áttatíu og þrjú og fjögur sem ég las fyrst um fólkið í Gamla húsinu og Thulekampinum, þá sendi Einar Kárason kaflann um daginn þegar Hreggviður reyndi að setja heimsmet í kúluvarpi til Tímarits Máls og menningar sem ég ritstýrði þá. En ég man ágætlega hvernig mér leið ... Lesa meira