Þú ert hér://Tag: Tómas Helgi Baldursson

„Svo kaldar, þessar hendur“

2025-12-07T13:34:08+00:007. desember 2025|

Sviðslistahópurinn Óður frumsýndi í gærkvöldi á litla sviði Borgarleikhússins óperuna La bohème eftir Giacomo Puccini. Að venju hafa Sólveig Sigurðardóttir og Þórhallur Auður Helgason þýtt líbrettó Luigis Illica og Giuseppe Giacosa á þjála, fyndna og fallega íslensku. Leikstjóri er sem fyrr Tómas Helgi Baldursson og tónlistarstjóri er sem fyrr Sævar Helgi Jóhannsson en nú hefur [...]

„Ódauðleg er ástin og eilíf hamingjan“

2024-12-02T15:02:38+00:002. desember 2024|

Sviðslistahópurinn Óður frumsýndi í gærkvöldi í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll vinsælu gamanóperuna Rakarann í Sevilla sem Gioachino Rossini samdi upp úr gamanleik eftir Frakkann Pierre Beaumarchais og frumsýndi 1816 í Róm. Sópraninn og tenórinn, Sólveig Sigurðardóttir og Þórhallur Auður Helgason, þýða textann á einstaklega lipurt, fallegt og fyndið málfar sem nýtur sín vel með tónlistinni og [...]

Svikuli tenórinn og snjalli sópraninn

2024-03-25T10:34:28+00:0024. mars 2024|

Þau eru gífurlega skemmtileg og líka feikna flink unga fólkið í Sviðslistahópnum Óði sem nú færir okkur í þriðja sinn gamanóperur í Þjóðleikhúskjallaranum. Í þetta sinn er það ópera sem aldrei hefur sést hér áður á sviði, Póst-Jón eða Le postillon de Lonjumeau eftir franska tónskáldið Adolphe Adam (1803–1856). Enn er það sópraninn í hópnum, [...]

Allt í lagi að vera smá smár

2022-03-23T12:54:34+00:0020. mars 2022|

Sviðslistahópurinn Toxic Kings frumsýndi í gærkvöldi spunaverkið How to make love to a man á tilraunaverkstæði Borgarleikhússins, Umbúðalaust, á 3. hæðinni. Hugmyndina spinna þeir út frá gamalli bók með sama titli sem ætluð var konum, að sjálfsögðu, en fannst áhugavert að gá hvort karlmenn gætu líka lært að elska sjálfa sig. Ég held að þeir [...]

„Á morgun mun hún elska mig!“

2021-10-22T13:38:41+00:0022. október 2021|

Gamanóperan Ástardrykkurinn eftir Donizetti var frumsýnd í Mílanó árið 1832 en er ennþá frísk og fjörug þrátt fyrir háan aldur, í það minnsta í meðförum sviðslistahópsins Óðs í Þjóðleikhúskjallaranum. Þau laga hana að sýningarstaðnum, láta hana gerast á kaffihúsi þar sem ein persónan vinnur og aðrar persónur eiga leið um. Snilldarhugmynd. Sviðið er á dansgólfinu [...]

Jónmundur og Kústur leysa morðmálin

2021-04-27T13:27:19+00:0023. apríl 2021|

Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð sýnir nú eigið sköpunarverk, Næsta morð á dagskrá – sagan af því hvernig Gréta hætti að gráta, undir stjórn Helga Gríms Hermannssonar og Tómasar Helga Baldurssonar. Unglingarnir vita að nútíminn hefur ekki áhuga á neinu öðru en glæpamálum og í þessu verki eru morðin þrjú! Upphaf sögu er að stúlkan Gréta [...]

Skólaskassið tamið

2021-02-12T13:21:35+00:0012. febrúar 2021|

Í sýningunni 10 hlutir sem Listafélag Verzlunarskólans sýnir nú í sal skólans undir stjórn Tómasar Helga Baldurssonar, byrjar pilturinn Kamel-Jón (Ágúst) í nýjum skóla. Og þá gerist tvennt alveg á fyrstu dögunum: hann verður bálskotinn í Biöncu hinni blíðu og fögru (Hrönn) og eignast bestu vinkonuna Bessý (Ilmur) sem hann fær til að hjálpa sér [...]