Þú ert hér://Tag: Tinna Lind Gunnarsdóttir

Fíll, fíll, burt með þig!

2019-05-06T17:03:51+00:0017. september 2016|

Brúðuheimar frumsýndu áðan splunkunýtt verk í upphæðum Þjóðleikhússins. Bernd Ogrodnik er þar allt í öllu að venju, leikritið Íslenski fíllinn er eftir hann og Hildi M. Jónsdóttur, hann hannar brúðurnar og leikmyndina, stjórnar brúðunum og semur tónlistina þar að auki. Kraftaverkamaður. Efnið sprettur út úr fréttum undanfarin ár af vegalausu fólki vegna náttúruhamfara af ýmsu [...]

Refaveiðar

2019-06-12T12:25:48+00:0017. nóvember 2013|

Dystópíur eru í tísku um þessar mundir – skáldverk þar sem lýst er illum heimi og engin eða lítil von framundan. Nægir að minna á Hungurleikana vinsælu og benda á að nokkrar bækur koma út á íslensku nú í haust, bæði innlendar og þýddar, sem gerast í slíkum vondum heimi. Kannski stafar þetta af umræðum [...]

Saga úr kreppunni

2019-08-08T16:06:31+00:0025. mars 2012|

Fátæka leikhúsið ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur frekar en venjulega heldur setur nú upp nýja þýðingu á tæplega sjötíu ára leikriti Tennessee Williams, Glerdýrunum, í Þjóðleikhúskjallaranum. Þýðandi og leikstjóri er Heiðar Sumarliðason. Leikritið gerist í kreppunni miklu á fjórða áratugnum og segir frá einstæðri móður með tvö uppkomin börn. Verkið er [...]

Fokking fokk – sorrí

2020-01-30T15:29:01+00:009. janúar 2010|

Myndin á plakati leikritsins Munaðarlaus sem var frumsýnt í Norræna húsinu í gær (8.1.10) virðist við fyrstu sýn alveg út í hött, en hún öðlast mikinn merkingarauka þegar maður er búinn að sjá sýninguna. Á myndinni eru tvö lítil systkini, dálítið stærri stelpa, alvarleg og ábyrg á svip, og skælbrosandi yngri bróðir. Þau eru í [...]

Átök á háaloftinu

2020-01-30T16:54:58+00:0026. ágúst 2009|

Það fylgdi því ekta sælutilfinning – auk ávænings af dejavu – að príla upp á háloft í Batteríinu í gær til að fara á leiksýningu. Minnti á góða gamla daga í London á áttunda áratugnum þegar maður staulaðist upp og niður margan hænsnastigann í leit að sannri upplifun. Oftar en ekki fannst hún. Og í [...]