Þú ert hér://Tag: Þórunn María Jónsdóttir

Þrjár systur – og bróðir

2019-05-27T13:41:56+00:0017. september 2014|

Það var sannarlega gaman að sjá þær saman á sviði í Tjarnarbíó í gærkvöldi Margréti Guðmundsdóttur, Önnu Kristínu Arngrímsdóttur, Guðbjörgu Thoroddsen (Bauju) og Halldóru Björnsdóttur. Nokkur tími er síðan þessar konur sáust leika en þær hafa að sjálfsögðu engu gleymt. Sýningin var á Róðaríi, nýju fjölskyldudrama eftir Hrund Ólafsdóttur, og leikstjóri var Erling Jóhannesson. Konurnar [...]

Um hunda og menn

2019-06-04T08:33:15+00:0014. mars 2014|

Stundum er forvitnilegt að fara á leiksýningu þegar margir eru búnir að tjá sig um hana, einkum ef þeir eru ekki sammála, og bera eigið mat saman við mat hinna. Gagnrýnendur Djöflaeyjunnar voru til dæmis ekki hrifnir af Furðulegu háttalagi hunds um nótt í Borgarleikhúsinu en Hlín Agnarsdóttir gaf fjórar og hálfa stjörnu í DV, [...]

Píkur fimm á palli inni

2019-06-12T14:46:21+00:0019. október 2013|

Það er svo góður gangur í sýningum Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu að til vandræða horfir. Því hefur leikhússtjórinn nú komið sér upp annexíu í Gamla bíói þar sem frumsýnd var í gærkvöldi uppsetning Kristínar Jóhannesdóttur áKristín Jóhannes eftir Federico Garcia Lorca, í nýrri þýðingu Jóns Halls Stefánssonar, á ísköldu, álklæddu og stórfenglegu sviði Brynju Björnsdóttur. [...]

„Út um trissur alls staðar eru tómir óvitar“

2019-06-12T14:50:15+00:0014. október 2013|

Barnaleikritið Óvitar eftir Guðrúnu Helgadóttur var frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins í gær, landsins börnum til mikillar ánægju. Gunnar Helgason stýrir því af sínu alkunna fjöri og hugmyndaauðgi og Ilmur Stefánsdóttir gerir litríka leikmynd sem er heilt ævintýri fyrir unga áhorfendur. Leikarar eru geysimargir og allt á iði á sviðinu í senum sem gerast utanhúss. Innanhúss [...]

Þrjár konur

2019-08-22T16:48:16+00:0028. október 2011|

Í gærkvöld var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu leikritið Hreinsun eftir Sofi Oksanen undir stjórn Stefáns Jónssonar. Leikritið var fyrst sýnt í Finnska þjóðleikhúsinu 2007 og í framhaldi af því samdi höfundur skáldsögu með sama nafni um sömu persónur, og hún hefur farið eins og logi yfir evrópskan bókmenntaakur síðan. Sigurður Karlsson þýddi bæði leikverkið og skáldsöguna [...]