Þú ert hér://Tag: Þór Tulinius

„Týnd er æra, töpuð er sál“

2021-03-08T13:07:50+00:005. mars 2021|

  Dæmdar konur fyrri alda fá nú uppreist æru hver af annarri. Bubbi Morthens söng um þær í titillagi plötunnar 18 konur og nefndi þar sérstaklega Þórdísi Halldórsdóttur sem vígði Drekkingarhyl árið 1618. Þórdís fékk svo um sig heila skáldsögu síðastliðið haust þegar Þóra Karítas Árnadóttir gaf út Blóðberg. Og nú hefur leikflokkurinn Svipir tekið [...]

Er hlæjandi að þessu?

2019-05-27T15:57:07+00:0024. september 2018|

Það fer ekkert milli mála að efniviður háðsádeilu Guðmundar Brynjólfssonar, Svartlyngs, sem leikfélagið GRAL sýnir nú í Tjarnarbíó, er „Höfum hátt“-hreyfingin sem felldi ríkisstjórn í fyrra. Leikstjóri er líka Bergur Þór Ingólfsson sem stóð í miðju átakanna. Þessi efniskjarni er þó dulinn framan af. Vandræði Svartlyngs ráðherra (Sveinn Ólafur Gunnarsson) og ráðstýru hans (Sólveig Guðmundsdóttir) [...]

Getur þetta gerst hér?

2019-03-13T17:11:18+00:004. september 2018|

Hannesarholt troðfylltist óvænt í gærkvöldi þegar nýtt verk var leiklesið þar, Fáir, fátækir, smáir, eftir höfund sem ekki vildi láta nafns síns getið. Árni Kristjánsson leikstýrði og hafði hóað saman stórum hópi fagmanna til að flytja verkið. Helga Björnsdóttir sá um útlit sýningarinnar og Guðni Franzson um tónlistina. Fólk sem ólst upp við útvarpsleikritin sem [...]

Hverju reiddust goðin?

2019-08-23T14:55:17+00:0026. september 2011|

Þriðja leiksýningin á þessari menningarhelgi (við sáum þar að auki rúmönsku bíómyndina Á útleið á RIFF, afar áhrifamikið drama) var líka þriðja uppistandið en vel undirbyggt og fræðandi að þessu sinni. Þetta var ný sýning í Landnámssetrinu í Borgarnesi, Blótgoðar eftir Þór Tulinius í flutningi hans sjálfs undir stjórn Peters Engkvist. Í Blótgoðum segir Þór [...]