Þú ert hér://Tag: Selma Rán Lima

Leiðin að mennskunni

2026-10-17T14:00:20+00:0017. október 2026|

Það var mögnuð stemning í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi á frumsýningunni á Höggi eftir James Graham, manni fannst á löngum stundum að salurinn andaði ekki. Greinilegt var að hver einasti áhorfandi gat sett sig í spor fólksins á sviðinu og skilið hve óskaplega djúp spor eitt högg getur skilið eftir sig. Aðeins eitt högg – eða [...]

„Lína, það er ég“

2025-09-14T11:34:17+00:0014. september 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær splunkunýja uppsetningu á Línu Langsokk eftir Astrid Lindgren í leikgerð Staffans Götestam, þýðingu Þórarins Eldjárn og leikstjórn Agnesar Wild. Um þessar mundir eru áttatíu ár síðan þessi ástsæla persóna birtist fyrst á prenti i heimalandi höfundar, Svíþjóð, við misjafnar viðtökur fullorðinna en óskoraðan fögnuð barna, og nú er hún sennilega frægasta [...]

Andvökunótt á heimili hjartalæknisins

2025-02-08T12:50:02+00:008. febrúar 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi í Kassanum nýtt leikrit eftir Hrafnhildi Hagalín, Heim. Leikstjóri er þjóðleikhússtjóri sjálfur, Magnús Geir Þórðarson. Búninga og leikmynd hannaði Filippía I. Elísdóttir, lýsinguna Björn Bergsteinn Guðmundsson en algerlega göldrótt tónlistin var eftir Gísla Galdur Þorgeirsson. Heim er klassískt að byggingu, gerist á einum stað á tæpum sólarhring, frá síðdegi, yfir kvöld [...]

Ó, þetta er indælt stríð

2019-12-02T16:57:17+00:001. desember 2019|

Í pistli sínum í leikskrá Gestagangs segir leikstjórinn, Þorgeir Tryggvason, að áhugaleikfélagið Hugleikur hafi verið stofnað til að „borgarbúum byðust loksins sömu tækifæri til listsköpunar og landsbyggðafólkið hafði notið eins lengi og elstu menn mundu“. Í nýju sýningunni má sjá þessa hugsjón í verki því alls taka þar þátt yfir þrjátíu manns, leikarar og hljómlistarmenn. [...]