Þú ert hér://Tag: Rakel Björk Björnsdóttir

Happaþrennan

2025-02-04T16:23:01+00:002. febrúar 2025|

Það er óttalegt vesen að vera prinsessa, eins og þær gera okkur ljóst söng- og leikkonurnar í Raddbandinu sem í gærdag frumsýndu í Tjarnarbíó  eigin söngleik fyrir alla fjölskylduna, Hver vill vera prinsessa? Sara Martí leikstýrir og samdi verkið með þeim en Stefán Örn Gunnlaugsson samdi lögin ásamt prinsessu 9, Rakel Björk Björnsdóttur. Gullfallegar lifandi [...]

Nífaldur Bubbi Morthens

2020-03-17T17:07:50+00:0014. mars 2020|

Tvennt gerir mér einkum erfitt fyrir að skrifa um söngleikinn 9 líf eftir Bubba Morthens og Ólaf Egil Egilsson sem var frumsýndur á stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi undir stjórn Ólafs Egils. Annað er hve margir hafa þegar tjáð sig í svo löngu og litríku máli um sýninguna á Facebook að það verður vandi að [...]

Stundum verður maður að vera óþekkur

2019-05-21T14:52:57+00:0016. mars 2019|

Borgarleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi á stóra sviðinu söngleikinn Matthildi eftir Roald Dahl (saga), Dennis Kelly (leiktexti) og Tim Minchin (tónlist og söngtextar) í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir af sínu alþekkta öryggi, tónlistarstjóri er Agnar Már Agnarsson og Lee Proud semur dansana eins og viðbúið var. Þetta er gríðarmikið sjónarspil á einhverri [...]

Vormenn Íslands á 21. öld

2019-05-20T17:17:36+00:0010. mars 2015|

Herranótt Menntaskólans í Reykjavík setur nú upp leiksýningu í 170. sinn. Þau völdu 125 ára gamalt leikverk, Vorið vaknar eftir Frank Wedekind, þó ekki upprunalega leikritið heldur rokksöngleik sem Duncan Sheik og Steven Sater sömdu upp úr því á ensku laust fyrir aldamótin 2000. Tónlistin er kraftmikil og skemmtileg og flytur þetta tímalausa efni áreynslulaust [...]

Doktor Fástus yngdur upp

2019-06-18T11:25:05+00:0013. mars 2013|

Þau ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur MR-ingarnir sem nú sýna Doktor Fástus í myrku ljósi í Tjarnarbíó. Þetta er um það bil 75 ára gamalt verk eftir bandaríska framúrstefnuhöfundinn Gertrud Stein og þar eru sannarlega ekki farnar beinustu leiðir að efninu en það varð dillandi skemmtilegt hjá krökkunum undir hugmyndaríkri stjórn [...]