Þú ert hér://Tag: Pálmi Jónsson

Maðurinn er það sem hann er ekki

2021-02-24T09:14:37+00:0022. febrúar 2021|

Núna þegar ég sé Sölumaður deyr í þriðja sinn – og í annað sinn á stóra sviði Borgarleikhússins – kemur það mér einkum á óvart hvað þetta fólk hans Arthurs Miller er lágkúrulegt. Áður var ég full af vorkunnsemi með „litla bátnum í leit að höfn“ en nú finnst mér ég sjá persónurnar í skærara [...]

Það sem dalurinn geymir

2020-10-08T14:02:34+00:005. október 2020|

Eins og í verðlaunaverkinu Club Romantica í fyrra stígur Friðgeir Einarsson fram í eigin nafni í Útlendingnum – Morðgátu, sem var frumsýnd á Litla sviði Borgarleikhússins sl. föstudagskvöld, og leiðir okkur inn í eigin sögu. Hann þarf að flytja til Bergen í Noregi vegna þess að konan hans hefur fundið nám við sitt hæfi í [...]

Feður, synir og dætur

2020-01-18T18:13:05+00:0018. janúar 2020|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi nýtt leikrit eftir Tyrfing Tyrfingsson, Helgi Þór rofnar, á Nýja sviði Borgarleikhússins undir stjórn Stefáns Jónssonar. Eins og Tyrfingur vísaði í grískar goðsögur um Fedru og Hyppólýtus í síðasta verki sínu, Kartöfluætunum, vísar hann hér í goðsögurnar um Kassöndru og fleiri grískar hetjur, lætur örlög guða og mikilmenna endurspeglast í [...]

Nóbelsskáld deyr

2019-10-20T11:50:06+00:0020. október 2019|

Björn Leó Brynjarsson hefur verið leikskáld Borgarleikhússins undanfarið ár og í gærkvöldi sá ég afraksturinn, Stórskáldið á Nýja sviði undir stjórn Péturs Ármannssonar. Mér er enn furðu ferskur í minni einleikurinn Frami eftir Björn Leó sem var sýndur í Tjarnarbíó fyrir fjórum árum þannig að væntingarnar voru talsverðar. Þær minnkuðu ekki við geysilega viðamikið (bókstaflega, [...]