Þú ert hér://Tag: Páll Ragnarsson

Hvað er auður og afl …?

2019-05-22T14:08:47+00:0019. október 2014|

Maður mátti hafa sig allan við að fá ekki alvarlegt kast af þjóðernishroka undir frumsýningunni á Don Carlo í Eldborgarsal Hörpu í gærkvöldi. Á snilldarlega hönnuðu sviði Þórunnar Sigríðar Þorgrímsdóttur, frumlega lýstu af Páli Ragnarssyni, steig fram hver glæsilegi söngvarinn af öðrum og lék og söng hlutverk sitt í einni mestu óperu Verdis undir styrkri [...]

Mala domestica

2019-06-04T08:45:08+00:002. mars 2014|

Það var söguleg stund í gærkvöldi í margra huga þegar fagnað var innilega í fullum Eldborgarsal Hörpu frumsýningu íslenskrar óperu í fullri lengd um sögulegt íslenskt efni. Söngvurunum í Ragnheiði var tekið með kostum og kynjum í uppklappinu, einkum Elmari Gilbertssyni sem söng hlutverk Daða Halldórssonar, Þóru Einarsdóttur sem söng titilhlutverkið og Viðari Gunnarssyni sem [...]

Fyrsta óperan í Hörpu

2019-08-23T14:09:47+00:0023. október 2011|

Það var gífurleg stemning í Hörpu á laugardagskvöldið: fullt í öllum sölum og þúsundir í húsinu. Þar að auki var verið að frumsýna fyrstu óperuna í Eldborg og mikil ánægja með þann áfanga. Menn óskuðu hver öðrum til hamingju með daginn eða buðu gleðilega hátíð. Óperan var sú gamalkunna Töfraflauta Mozarts, dýrlegt músíkstykki með nokkrum [...]

Ljúffengur Ástardrykkur

2020-01-31T14:33:40+00:0026. október 2009|

Það var ótrúlega gaman að hlýða á Ástardrykkinn eftir Donizetti í Íslensku óperunni í gærkvöldi. Félagi minn á frumsýningunni hafði séð uppsetningu á verkinu í sjálfri Vínaróperunni fyrir fáum árum og hann fullyrti að söngurinn væri alveg eins góður hér og þar. Það kom mér ekki á óvart. Hér er valinn maður í hverju einsöngshlutverki: [...]