Þú ert hér://Tag: Örn Árnason

Ólíkindalæti

2019-06-19T11:29:32+00:0013. október 2012|

Gagnrýnendur eru sem kunnugt er þekktir fyrir að fyrirlíta gamanleiki og farsa, helstu kassastykki leikhúsanna, þeir (gagnrýnendurnir) eru auðvitað svo háfleygir að það rignir upp á nasirnar á þeim og þess vegna þola þeir ekki að fólk bara skemmti sér í leikhúsinu. Nú vil ég alls ekki vera af þessari sort, enda leiðist mér yfirleitt [...]

Sýning ársins

2019-08-08T17:07:58+00:006. mars 2012|

Sýning ársins / Mynd: Björn Snorri Rosdahl Sviðslistahópurinn 16 elskendur skemmtu áhorfendum vel í Borgartúni 6 á sunnudagskvöldið þar sem þau bjuggu til óvænta „leiksýningu“ úr félagsfræðilegri rannsókn. Aðdragandinn var sá að Félagsvísindastofnun HÍ gerði athugun á því í samvinnu við 16 elskendur hvað Íslendingar vilja sjá í leikhúsi. Úr flóknum og margslungnum [...]

Brestur á með söng

2019-08-24T12:53:13+00:009. apríl 2011|

Það er mótsögn í orðunum sígilt og dægurlag en þó er það svo að fátt er eins sígilt og dægurlag sem hefur lifað af. Það er ekki aðeins sígilt af því að það heldur áfram að vera vel samið, jafnvel snilldarlega gert, heldur getur það á augabragði kallað fram minningar, jafnvel um atvik sem við [...]

Balalalalalalalallið – á Bessastöðum

2019-08-24T14:00:23+00:004. febrúar 2011|

Það hefur verið svolítið í tísku undanfarin ár að búa til þjóðhöfðingja í sviðsverkum eða sjónvarpi, ég minnist sérstaklega bandarísku seríunnar West Wing þar sem Martin Sheen bjó til nær fullkominn forseta handa Könum (og sem hafði áreiðanlega áhrif á síðustu forsetakosningar vestra) og dönsku seríunnar Borgen þar sem Sidse Babett Knudsen skapar Dönum nær [...]

Vandinn að vera unglingur

2020-01-30T11:46:32+00:0020. mars 2010|

Það vildi svo skemmtilega til í vikunni að ég sá tvo söngleiki um líf unglinga, sýningar sem gáfu mér óvænt tækifæri til að bera saman flutning framhaldsskólanema á verki um líf jafnaldra sinna og tilveru í samtímanum og lærðra leikara á þrítugs- og fertugsaldri sem freistuðu þess að flytja tveggja áratuga gamalt verk um reykvíska [...]

Frida, Harry og Heimir

2020-01-30T16:43:17+00:0013. september 2009|

Stóru leikhúsin opnuðu dyr sínar fyrir fyrstu gestum haustsins um helgina og hófu bæði vetrarstarfið á íslenskum verkum. Það var um það bil það eina sem þau áttu sameiginlegt. Á stóra sviði Þjóðleikhússins var okkur sögð saga mexíkóska myndlistarmannsins Fridu Kahlo á föstudagskvöldið, átakanleg ævisaga vörðuð slysum og svikum; á litla sviði Borgarleikhússins var á [...]

Já, skyldi maður ekki hafa nóg?

2020-01-31T15:50:46+00:0024. febrúar 2009|

Þjóðleikhúsið frumsýndi Kardemommubæinn á sunnudaginn, fullu húsi af fallegum börnum til mikillar kátínu. Selma Björnsdóttir leikstýrði og setti að ýmsu leyti sitt mark á sýninguna, til dæmis voru leikarar ungir, ljónið var póstmódern og las blöðin og dansarnir (sem Birna og Guðfinna Björnsdætur sáu um) krakkalega eróbikklegir. Sviðið hans Brians Pilkingtons er litríkt og fallegt og búningarnir [...]