Þú ert hér://Tag: Ólafur Björn Ólafsson

Ástarbréf yfir múrinn

2022-01-21T17:01:35+00:0021. janúar 2022|

Einleikurinn Það sem er, sem María Ellingsen frumsýndi í Tjarnarbíó í gærkvöldi, var upphaflega stutt skáldsaga, bréfasaga, sem þóttist kannski vera sönn: höfundurinn, Peter Asmussen, segist í inngangi hafa „fundið“ bréfin í fórum frænda síns eftir að hann lést. Þessi forsaga er ekki með í leiksýningunni, þar göngum við einfaldlega inn á bréfritarann, konuna Renate [...]

Puffin etketera

2019-05-03T16:45:59+00:0029. október 2016|

Ég veit ekki hvað forsvarsmenn stjórnarflokkanna segðu ef þeir hefðu séð leiksýninguna sem frumsýnd var kvöldið fyrir kjördag. Extravaganza eftir Sölku Guðmundsdóttur, sem Soðið svið og Borgarleikhúsið frumsýndu í gær á Nýja sviði, er kolsvartur söng- og gamanleikur sem segir eins skýrt og verða má að hér á landi á (eins og skáldið sagði) sé [...]

Margslunginn veruleiki

2019-06-12T15:22:55+00:008. september 2013|

Frumsýningar þessa sunnudags voru gerólíkar að flestu leyti. Hættuför í Huliðsdal eftir Sölku Guðmundsdóttur sem Soðið svið sýnir í Kúlu Þjóðleikhússins er viðburðaríkt ævintýri, fullt af óvæntum uppákomum og furðulegum persónum en grunnurinn ákaflega raunverulegur. Blik eftir Bretann Phil Porter sem Artik sýnir í Gamla bíó í þýðingu Súsönnu Svavarsdóttur er hversdagsraunsæi í sinni afbrigðilegustu [...]

Minna rugl – meira tempó

2019-08-24T14:29:38+00:0017. janúar 2011|

Ung kona fer í fjarlæga eyjarbyggð til að rannsaka kafla í sögu staðarins og skrifa fræðiritgerð um hann. En hún fær óljós svör við spurningum sínum, allir hafa einhverju að leyna, og loks kemur upp úr dúrnum að hún leikur líka tveim skjöldum sjálf. Þetta efni hljómar kunnuglega, það endurómar spennusögur af ýmsu tagi. Enda [...]