Þú ert hér://Tag: Ólafur Ágúst Stefánsson

Illt er að binda ást við þann …

2019-05-08T15:31:29+00:003. apríl 2016|

Það voru áhöld um það um tíma í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi hvort aðeins þeim réttu hefði verið hleypt inn. Talsvert var um tvísölu á sætum, að því er virtist, og tafðist sýningin á Hleyptu þeim rétta inn um fáeinar mínútur meðan greitt var úr vandanum. Það var eins og miðasölukerfi leikhússins væri að grínast með [...]

Heimilisólukka enn

2019-05-16T16:43:49+00:006. september 2015|

„Er til meiri klisja?“ spyr Símon Birgisson dramatúrg í leikskrá Móðurharðindanna eftir Björn Hlyn Haraldsson sem voru frumsýnd í Kassa Þjóðleikhússins í gærkvöldi. Hann er að meina efni verksins, uppgjör í fjölskyldu eftir að heimilisfaðirinn deyr. Þessi orð Símonar eiga ekki síst vel við af því að eitt síðasta verkið á fjölum Reykjavíkurleikhúsa í vor [...]

Kolumkilli var hér

2019-05-22T12:30:18+00:0027. desember 2014|

Byrjunin á sýningunni á Sjálfstæðu fólki í Þjóðleikhúsinu er bæði snjöll og áhrifarík. Þó sést í útgefinni leikgerð að handritshöfundar hafa ekki ætlað að láta sýninguna byrja svona. Hugmyndin hefur komið seint til. Ung hjón standa fyrir miðju framsviði, þögul, hlið við hlið, en í stúkunni til hliðar sitja roskin hjón, mun glæsilegar búin en [...]

Salem í samtímanum

2019-06-04T08:04:55+00:0028. apríl 2014|

Mér er enn í furðu fersku minni uppsetning Stefans Metz á Krítarhringnum í Kákasus eftir Brecht í Þjóðleikhúsinu fyrir fimmtán árum og hlakkaði mikið til að sjá Eldraunina hans á sama sviði í ár. En Eldraunin er að sjálfsögðu allt öðruvísi verk og þar eru brellur leiksviðsins óþarfar og jafnvel til bölvunar. Sýningin er vissulega [...]

Kona, þekktu sjálfa þig

2019-06-12T15:56:05+00:0019. apríl 2013|

Það eru orðin rúm þrjátíu ár síðan ég sat í góðum hópi kvenna og þýddi og staðfærði danska fræðiritið Kvinde kend din krop. Hugsa sér að svona langur tími skuli vera liðinn! Danir hafa verið duglegri en við að halda þessari frábæru bók við; þar er hún uppfærð reglulega en hér hefur hún ekki komið [...]

Dagur í lífi Johnnys Roosters Byron

2019-06-18T11:59:19+00:0024. febrúar 2013|

Ég kom algerlega bláeygð á Fyrirheitna landið í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Af einhverjum ástæðum hafði ég ekkert heyrt og ekkert lesið um verkið, ekki einu sinni um öll verðlaunin og viðurkenningarnar sem það hefur fengið, bara séð auglýsingarmyndina af Hilmi Snæ á netbol, með lúmskt glott á fallegu andlitinu og sígarettu milli fingranna. Augljóst er [...]

Beisk barátta ills og góðs

2019-08-08T16:52:22+00:004. mars 2012|

Það var mikið hrópað og klappað í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi að lokinni þriggja tíma maraþonsýningu á Vesalingunum. Enda var ástæða til. Leikhúsið hafði tjaldað til mörgum sínum allrabestu söngkröftum, svið Finns Arnars Arnarsonar var óvænt og áhrifamikið, Tónlistin kom ekki úr hátölurum heldur beint upp úr gryfjunni undir styrkri stjórn Þorvalds Bjarna Þorvaldssonar, búningar Maríu [...]

Má ég fá meira?

2020-01-30T15:39:13+00:0027. desember 2009|

Á fjölmennum leiksýningum eins og Oliver! grípur mann sú tilfinning að einmitt til slíks brúks hafi leikhús verið hugsað: til að fylla sviðið af fólki, lífi og fjöri. Þegar barnahópurinn þrammaði inn í borðsal fátækrahælisins í upphafi frumsýningar í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi og raðirnar ætluðu engan endi að taka þá fylltist ég öryggistilfinningu, þetta yrði [...]