Þú ert hér://Tag: Níels Thibaud Girerd

Ennþá gerast ævintýr

2026-07-12T15:43:26+00:0011. júlí 2026|

Afturámóti frumsýndi í gærkvöldi í Háskólabíó ævintýraleikinn Ástarseyði Bergamólíó kroppinbaks eftir Einar Baldvin Brimar. Leikstjóri er Egill Andrason og hann annaðist líka tónlistarstjórn og hljóðhönnun; Helga Brá Brimar hannaði fjölda ævintýralegra búninga en María Jóngerð Gunnlaugsdóttir hannaði lýsingu. Í þennan ástardrykk blandar höfundur saman efni úr hinum ólíklegustu áttum: ævintýrum, riddarasögum, óperum og arabískum nóttum [...]

Allt er alltaf alls staðar í allra besta lagi?

2026-02-28T14:10:15+00:0027. febrúar 2026|

Leikfélag Akureyrar frumsýndi í gærkvöldi í Samkomuhúsinu í höfuðstað Norðurlands leikgerð Bergs Þórs Ingólfssonar af Birtíngi Voltaires undir leikstjórn sama. Birtíng þýddi á sínum tíma Halldór Laxness (1945). Snjalla og marghliða leikmynd hannaði Sigríður Sunna Reynisdóttir; Björg Marta Gunnarsdóttir skapaði endalausa gnótt bráðskemmtilegra búninga en Petr Hloušek teiknaði lifandi myndir á baktjaldið þegar mikið lá [...]

„Svo kaldar, þessar hendur“

2025-12-07T13:34:08+00:007. desember 2025|

Sviðslistahópurinn Óður frumsýndi í gærkvöldi á litla sviði Borgarleikhússins óperuna La bohème eftir Giacomo Puccini. Að venju hafa Sólveig Sigurðardóttir og Þórhallur Auður Helgason þýtt líbrettó Luigis Illica og Giuseppe Giacosa á þjála, fyndna og fallega íslensku. Leikstjóri er sem fyrr Tómas Helgi Baldursson og tónlistarstjóri er sem fyrr Sævar Helgi Jóhannsson en nú hefur [...]

Feðraveldið fær á baukinn

2025-09-27T16:09:46+00:0027. september 2025|

Leikfélagið Silfurskeiðin frumsýndi í gærkvöldi í Tjarnarbíó Jónsmessunæturdraum eftir William Shakespeare í úrvalsþýðingu Þórarins Eldjárn. Leikstjórar eru María Ellingsen og Magnús Thorlacius, og Eyja Gunnlaugsdóttir kom til aðstoðar þegar Magnús þurfti að hverfa frá; búninga og leikmynd sér Íris Ólafsdóttir um, Sóley Ólafsdóttir samdi sviðshreyfingar, Ronja Jóhannsdóttir samdi tónlistina og skapaði hljóðmyndina en Fjölnir Gíslason [...]

Á trúnó með keisaranum

2025-03-12T09:54:40+00:0012. mars 2025|

Í Hannesarholti má um þessar mundir njóta einleiksins Napoleon í tónleikasalnum Hljóðbergi og jafnvel fylgir henni stundum vínsmökkun. Svo var þó ekki í gærkvöldi, þá var látið nægja að gefa okkur yfirlit yfir sögu „franskasta manns sögunnar“, eins og segir í kynningu, sem þó var ekki franskur heldur fæddur á Korsíku af ítölskum ættum. Textinn [...]

Aðallega uppi

2019-04-30T12:27:25+00:003. ágúst 2017|

Félagsheimili Seltjarnarness, vettvangur leiksýningarinnar Ég og minn bipolar bróðir eftir Tómas Gauta Jóhannsson, er furðu lítið notað undir slíkar menningarlegar uppákomur. Þetta er háklassískt félagsheimili, eins og þau sem voru byggð um allt land á mínum yngri árum, og alltof gott hús til að nota eingöngu undir afmælisveislur og þorrablót. Það fór ágætlega um fullan [...]