Þú ert hér://Tag: Margrét Helga Jóhannsdóttir

Hlægilega sorglegur Tsjekhov

2020-01-12T12:13:31+00:0012. janúar 2020|

Nýjárs- og afmælissýning Leikfélags Reykjavíkur, Vanja frændi eftir Anton Tsjekhov, var frumsýnd í gærkvöldi á stóra sviði Borgarleikhússins undir stjórn Brynhildar Guðjónsdóttur. Gunnar Þorri Pétursson þýddi verkið á tilgerðarlausa, auðskiljanlega og fallega íslensku og öll textavinna í sýningunni var aðdáunarverð. Sú einkunn átti sannarlega við fleira. Við erum stödd á sveitasetri Aleksanders Serebrjakovs prófessors í [...]

Nóra snýr aftur

2019-05-08T10:35:51+00:0022. september 2018|

„Hvert ætli þú hefðir svo sem getað farið?“ spyr Vilborg Dagbjartsdóttir Nóru Ibsens í ljóðinu „Erfiðir tímar“ (Kyndilmessa 1971) og áreiðanlega hefur þessi spurning sótt á huga margra undanfarin tæp 140 ár. Varð hún vændiskona í Kristjaníu? Skúringakona? Vinnukona? Eða gekk hún í sjóinn? Svo litla trú höfðum við á hugmyndaflugi hennar og seiglu og [...]

Þrjár konur

2019-08-22T16:48:16+00:0028. október 2011|

Í gærkvöld var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu leikritið Hreinsun eftir Sofi Oksanen undir stjórn Stefáns Jónssonar. Leikritið var fyrst sýnt í Finnska þjóðleikhúsinu 2007 og í framhaldi af því samdi höfundur skáldsögu með sama nafni um sömu persónur, og hún hefur farið eins og logi yfir evrópskan bókmenntaakur síðan. Sigurður Karlsson þýddi bæði leikverkið og skáldsöguna [...]

Vandinn að vera unglingur

2020-01-30T11:46:32+00:0020. mars 2010|

Það vildi svo skemmtilega til í vikunni að ég sá tvo söngleiki um líf unglinga, sýningar sem gáfu mér óvænt tækifæri til að bera saman flutning framhaldsskólanema á verki um líf jafnaldra sinna og tilveru í samtímanum og lærðra leikara á þrítugs- og fertugsaldri sem freistuðu þess að flytja tveggja áratuga gamalt verk um reykvíska [...]

Heim til mömmu

2020-01-30T16:02:20+00:002. nóvember 2009|

Ég játa að ég fylgist með framhaldsþáttunum Dirty Sexy Money í Sjónvarpi allra landsmanna. Þetta er hárbeitt háð um fólkið sem mörg okkar öfunda, ríkasta fólkið í hinum vestræna heimi, sorgir þess og gleði – aðallega sorgir náttúrlega – vel skrifaðir og ágætlega leiknir, sambærilegir að ýmsu leyti við þá dásamlegu grínþætti Aðþrengdar eiginkonur. Þarna [...]