Þú ert hér://Tag: Magnús Guðmundsson

Lína lifir

2019-05-27T13:56:23+00:0014. september 2014|

Það er ekki dregið úr því í sýningu Leikfélags Reykjavíkur á Línu Langsokk, sem var frumsýnd á stóra sviði Borgarleikhússins í gær, hvað Lína er ósvífin stúlka. Og fer ákaflega vel á því að láta Ágústu Evu Erlendsdóttur leika hana því allir muna ennþá hvernig hún kom eins og sprengja inn í íslenskan samtíma sem [...]

Að geta eða geta ekki

2019-06-04T07:53:00+00:0011. apríl 2014|

Leikritið Útundan eftir Alison Farina McGlynn, sem var frumsýnt í Tjarnarbíó í gærkvöldi á vegum Háaloftsins, er í stíl róttæku áranna þegar bókmenntir áttu að hafa beinan samfélagslegan tilgang. Og McGlynn er ekkert að leyna því; verkið hennar er um barnleysi og hún sýnir það vandamál frá furðumörgum sjónarhornum á ekki lengri sýningu. Leikstjóri er [...]

Að lifa lengi á lyginni

2019-06-19T10:25:42+00:0012. nóvember 2012|

Sögurnar af Múnkhásen barón hafa skemmt fólki alveg síðan á 18. öld þegar hann sjálfur var á dögum, fyrst í hans eigin frásögn, svo í endursögnum, misjafnlega trúum frumsögunum, í bókum ýmissa höfunda og loks í útvarpi og kvikmyndum. Það er ákaflega vel til fundið af Gaflaraleikhúsinu að rifja upp þessar sögur í fjölskyldusýningu sinni [...]

Vogur vinnur, vínið tapar

2019-06-19T11:09:04+00:0020. október 2012|

Það skemmtilegasta við að blogga um leikhús er hvað maður fær að sjá fjölbreytta flóru. Uppgötva hvað fólk getur verið að fást við ótrúlega ólíka hluti eiginlega á sömu þúfunni. Kvöldið eftir há-fagurfræðilega upplifun í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu fylgdumst við hjónin með meinfyndinni og dónalegri konu á fimmtugsaldri frá Hafnarfirði upplifa tráma lífs síns og [...]

Alltaf á sunnudögum

2019-08-08T17:45:46+00:0022. janúar 2012|

Það er virkilega gaman að horfa á strákana í Póker í Tjarnarbíó spjalla, gantast, þrefa, rífast og tuskast. Þeir eru svo eðlilegir á sviðinu þó að það sé þröngt og áhorfendur sitji beggja vegna við það – næstum eins og þeir viti ekki af okkur í kringum sig. Þarna hefur leikstjórinn, Valdimar Örn Flygenring, unnið [...]

Átök á háaloftinu

2020-01-30T16:54:58+00:0026. ágúst 2009|

Það fylgdi því ekta sælutilfinning – auk ávænings af dejavu – að príla upp á háloft í Batteríinu í gær til að fara á leiksýningu. Minnti á góða gamla daga í London á áttunda áratugnum þegar maður staulaðist upp og niður margan hænsnastigann í leit að sannri upplifun. Oftar en ekki fannst hún. Og í [...]