Þú ert hér://Tag: Lárus Björnsson

Maður og náttúra

2019-06-19T12:08:22+00:0027. apríl 2012|

Brúðuheimar og Bernd Ogrodnik frumsýndu í gær í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu og í samvinnu við Listahátíð leikgerð hans af Gamla manninum og hafinu, frægri nóvellu Ernests Hemingway sem hefur komið út á íslensku í þýðingu Björns O. Björnssonar. Hvergi er getið á upplýsingablaði með sýningunni hvort það er hans þýðing sem notuð er eða hvort [...]

Beisk barátta ills og góðs

2019-08-08T16:52:22+00:004. mars 2012|

Það var mikið hrópað og klappað í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi að lokinni þriggja tíma maraþonsýningu á Vesalingunum. Enda var ástæða til. Leikhúsið hafði tjaldað til mörgum sínum allrabestu söngkröftum, svið Finns Arnars Arnarsonar var óvænt og áhrifamikið, Tónlistin kom ekki úr hátölurum heldur beint upp úr gryfjunni undir styrkri stjórn Þorvalds Bjarna Þorvaldssonar, búningar Maríu [...]

„Sérðu línurnar?“

2019-08-23T14:41:08+00:0030. september 2011|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær á stóra sviðinu Listaverkið eftir Yasminu Reza í þýðingu Péturs Gunnarssonar. Margir muna eftir sýningu á sama verki á árunum 1997-8 og svo skemmtilega vill til að leikararnir eru þeir sömu nú og þá og leika sömu hlutverk undir stjórn sama leikstjóra, Guðjóns Pedersen. Sviðshönnuður er einnig sá sami, Guðjón Ketilsson, [...]

Að eiga son eða syni

2019-08-24T13:43:10+00:005. mars 2011|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi sjónleikinn Allir synir mínir eftir Arthur Miller í nýrri munntamri þýðingu Hrafnhildar Hagalín og undir stjórn Stefáns Baldurssonar. Þetta er ríflega sextugt leikverk, fyrst sýnt 1947. Það gerist árið áður og sprettur beint upp úr darraðardansi heimsstyrjaldarinnar sem þá var nýlokið. Joe Keller (Jóhann Sigurðarson) verksmiðjueigandi býr við góð efni í [...]

Má ég fá meira?

2020-01-30T15:39:13+00:0027. desember 2009|

Á fjölmennum leiksýningum eins og Oliver! grípur mann sú tilfinning að einmitt til slíks brúks hafi leikhús verið hugsað: til að fylla sviðið af fólki, lífi og fjöri. Þegar barnahópurinn þrammaði inn í borðsal fátækrahælisins í upphafi frumsýningar í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi og raðirnar ætluðu engan endi að taka þá fylltist ég öryggistilfinningu, þetta yrði [...]