Þú ert hér://Tag: Lára Sveinsdóttir

„That‘s Entertainment“

2019-08-23T14:23:49+00:0017. október 2011|

Enn ein skemmtileg uppákoma var frumsýnd í Þjóðleikhúskjallaranum í gærkvöldi: Judy Garland kabarett með Láru Sveinsdóttur og djasshljómsveit Úlfs Eldjárns. Þar syngur Lára lög sem Judy Garland gerði fræg og segir frá stjörnunni milli laga, stiklar á stormasamri og oft átakanlegri ævi hennar og lætur lagavalið undirstrika frásögn sína. Leikstjóri er Charlotte Böving og hinar [...]

Balalalalalalalallið – á Bessastöðum

2019-08-24T14:00:23+00:004. febrúar 2011|

Það hefur verið svolítið í tísku undanfarin ár að búa til þjóðhöfðingja í sviðsverkum eða sjónvarpi, ég minnist sérstaklega bandarísku seríunnar West Wing þar sem Martin Sheen bjó til nær fullkominn forseta handa Könum (og sem hafði áreiðanlega áhrif á síðustu forsetakosningar vestra) og dönsku seríunnar Borgen þar sem Sidse Babett Knudsen skapar Dönum nær [...]

Þegar gamli sorrý Gráni var felldur

2019-09-05T21:57:17+00:0016. október 2010|

Verið gæti að Finnski hesturinn eftir Sirkku Peltola sem Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær verði fremur við smekk sjálfstæðismanna og vinstri grænna en samfylkingarmanna því þar er ekki alltaf talað vel um Evrópusambandið. En húmorinn mun áreiðanlega höfða til allra jafnt, einkum þó óborganleg persóna ömmunnar sem Ólafía Hrönn skapar á sviðinu og fylgir manni út [...]

Jebbs

2020-01-30T11:51:37+00:0014. mars 2010|

Fíasól er flutt í Kúlu Þjóðleikhússins og þangað geta krakkar heimsótt hana. Hún er nefnilega að ná sér eftir flensuna og getur ekki komið út að leika. En við megum vel koma inn til hennar og sjá hana leika sér í hosiló við Ingólf Gauk og Pippu systur. Ég býst við að einhverjum ungum leikhúsgesti [...]

Er Valgerður betri María en Júlía?

2020-01-31T15:19:50+00:009. maí 2009|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi söngleikinn sígræna Söngvaseið á stóra sviði Borgarleikhússins í þýðingu Flosa Ólafssonar. Gersamlega óþarft er að tíunda efni og boðskap þessa verks sem allir þekkja, það eina sem spurt er um er hvernig tekst til með sviðsetninguna: Nær hún máli miðað við fyrri uppsetningar sem fólk hefur séð hérlendis og erlendis [...]