Þú ert hér://Tag: Kolfinna Nikulásdóttir

„Ég er fífl, ég er skúrkur“

2023-09-13T09:54:16+00:0010. september 2023|

Fyrsta frumsýning leikársins í Þjóðleikhúsinu var í gærkvöldi í Kassanum á Ást Fedru, vægðarlausu leikriti eftir breska leikskáldið Söruh Kane í prýðilegri þýðingu Kristínar Eiríksdóttur. Kolfinna Nikulásdóttir leikstýrir, Filippía I. Elísdóttir sér um leikmynd og búninga, Tumi Árnason um tónlist og Ásta Jónína Arnardóttir um ljós og myndbönd. Goðsagan forna um drottninguna sem girntist stjúpson [...]

„Í góðsemi vegur þar hver annan“

2022-12-30T10:36:38+00:002. desember 2022|

Myndlistarmaðurinn Sigurður Ámundason frumsýndi í gærkvöldi leikrit sitt Hið ósagða í Tjarnarbíó, svartan gamanleik sem afhjúpar af miskunnarleysi sjálfselska beiskju nútímafólks. Sjálfur leikur Sigurður eitt hlutverkið í leiknum auk þess sem hann bæði leikstýrir og framleiðir sýninguna. Kvikmyndin sem við sjáum á baktjaldi er eftir hann líka, óteljandi klipp héðan og þaðan í ógnarhraðri framrás [...]

„Orðspor never dies“

2021-03-25T10:18:54+00:0012. mars 2021|

Það verður ekki frýnilegt lífið eftir hrun siðmenningarinnar ef marka má verk Kolfinnu Nikulásdóttur, The last kvöldmáltíð. Það var frumsýnt í Tjarnarbíó í gærkvöldi á vegum leikhópsins Hamfara undir stjórn Önnu Maríu Tómasdóttur. Þar hittum við síðustu eftirlifendurna í óræðri framtíð, eins konar fjölskyldu, pabba, mömmu, stúlku og tvo drengi (skyldleikinn er óljós), sem hafa [...]

Ókei, takk, bæ!

2019-03-18T09:46:29+00:0027. janúar 2018|

Ég hef aldrei verið mikið fyrir teiknimyndasögur. Myndskreyttar sögur, fínt, en ekki sögur sagðar í myndum. Þess vegna varð ég svolítið hissa þegar Fréttatíminn lagði upp laupana í fyrravetur að finna að ég saknaði teikninganna hennar Lóu Hjálmtýsdóttur. Það tók mig tíma að læra að lesa þær en eftir að það tókst þurfti ég ekki [...]

Kvöldstund með Gíslínu Martínu

2019-04-30T14:23:05+00:0019. maí 2017|

Þær eru níu, hver annarri glæsilegri, jafnvel í barnalegum innigöllum leynir sér ekki hvað þær eru flottar. Svo syngja þær og leika, sviðsvanar og öruggar, á Litla sviði Borgarleikhússins: RVKDTR – Reykjavíkurdætur. Þær eru allar höfundar verksins en ein þeirra tekur ábyrgð á útkomunni, Kolfinna Nikulásdóttir leikstjóri, sem líka er ein í hópnum á sviðinu. [...]