Þú ert hér://Tag: Jóhann Sigurðarson

Að eiga son eða syni

2019-08-24T13:43:10+00:005. mars 2011|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi sjónleikinn Allir synir mínir eftir Arthur Miller í nýrri munntamri þýðingu Hrafnhildar Hagalín og undir stjórn Stefáns Baldurssonar. Þetta er ríflega sextugt leikverk, fyrst sýnt 1947. Það gerist árið áður og sprettur beint upp úr darraðardansi heimsstyrjaldarinnar sem þá var nýlokið. Joe Keller (Jóhann Sigurðarson) verksmiðjueigandi býr við góð efni í [...]

Efnið sem draumar spinnast úr

2019-08-24T14:54:11+00:0030. desember 2010|

Þær eru ekki líkar Shakespeare-sýningarnar sem voru frumsýndar í stóru leikhúsunum milli jóla og nýjárs. Eiginlega eru þær algerar andstæður. Sú ástralska í Þjóðleikhúsinu er dökk og dimm með „ekta” ofsaveðri og stórrigningu, sú litháíska í Borgarleikhúsinu litrík og björt með gamaldags rokvélum á sviðinu til að framkalla ofviðrið sem hún heitir eftir. Í Þjóðleikhúsinu [...]

Að vera eða ekki vera – þar er efinn

2019-09-05T22:10:22+00:0013. október 2010|

Ekki hef ég lengi séð eins vel heppnaða leikgerð skáldsögu á sviði og Fólkið í kjallaranum sem Borgarleikhúsið frumsýndi um helgina. Það sem gerði útslagið í leiktexta Ólafs Egils Egilssonar var hve mikið af auði sögunnar komst upp á sviðið, hve mörg atvik og hve mikið af togstreitunni og þjáningu efans sem þjakar aðalpersónuna. Þetta [...]

Vandinn að vera unglingur

2020-01-30T11:46:32+00:0020. mars 2010|

Það vildi svo skemmtilega til í vikunni að ég sá tvo söngleiki um líf unglinga, sýningar sem gáfu mér óvænt tækifæri til að bera saman flutning framhaldsskólanema á verki um líf jafnaldra sinna og tilveru í samtímanum og lærðra leikara á þrítugs- og fertugsaldri sem freistuðu þess að flytja tveggja áratuga gamalt verk um reykvíska [...]

Er Valgerður betri María en Júlía?

2020-01-31T15:19:50+00:009. maí 2009|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi söngleikinn sígræna Söngvaseið á stóra sviði Borgarleikhússins í þýðingu Flosa Ólafssonar. Gersamlega óþarft er að tíunda efni og boðskap þessa verks sem allir þekkja, það eina sem spurt er um er hvernig tekst til með sviðsetninguna: Nær hún máli miðað við fyrri uppsetningar sem fólk hefur séð hérlendis og erlendis [...]