Þú ert hér://Tag: Jakob van Oosterhout

Leiðin að mennskunni

2026-10-17T14:00:20+00:0017. október 2026|

Það var mögnuð stemning í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi á frumsýningunni á Höggi eftir James Graham, manni fannst á löngum stundum að salurinn andaði ekki. Greinilegt var að hver einasti áhorfandi gat sett sig í spor fólksins á sviðinu og skilið hve óskaplega djúp spor eitt högg getur skilið eftir sig. Aðeins eitt högg – eða [...]

Goðsaga fær nýtt líf

2026-10-16T14:36:37+00:0022. júní 2026|

Það dregur ekki fjöður yfir það, unga fólkið í Afturámóti, að það sé að vinna með gamalkunnugt efni í uppsetningu sinni á söngleiknum Með allt á hreinu í Háskólabíó. Þvert á móti leggja þau höfuðáherslu á það með því að skipa tvö úr hópnum, Gæruna Dýrleifu (Katla Þ. Njálsdóttir) og Stuðmanninn Skafta Sævars (Kristinn Óli [...]

„Lína, það er ég“

2025-09-14T11:34:17+00:0014. september 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær splunkunýja uppsetningu á Línu Langsokk eftir Astrid Lindgren í leikgerð Staffans Götestam, þýðingu Þórarins Eldjárn og leikstjórn Agnesar Wild. Um þessar mundir eru áttatíu ár síðan þessi ástsæla persóna birtist fyrst á prenti i heimalandi höfundar, Svíþjóð, við misjafnar viðtökur fullorðinna en óskoraðan fögnuð barna, og nú er hún sennilega frægasta [...]

Hve glöð er vor æska

2025-03-15T17:12:22+00:007. mars 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi við mikinn fögnuð gesta söngleikinn Storm eftir Unni Ösp Stefánsdóttur og Unu Torfadóttur. Unnur Ösp leikstýrir; tónlist og textar eru eftir Unu nema eitt lag samdi hún með tónlistarstjóranum Hafsteini Þráinssyni og svo fengum við að heyra brot úr frægum lögum eftir aðra þegar mikið lá við. Glæsilega og afar snjalla [...]

Nýtt blóð (og aðrir vessar) í sviðslistum

2024-04-05T08:50:13+00:004. apríl 2024|

Ég var svo heppin að ná að sjá útskriftarsýningar tveggja nemenda á sviðshöfundabraut LHÍ núna kringum páskana; bæði lofa góðu um framtíðina. Það fyrra var Mergur eftir Katrínu Lóu Hafsteinsdóttur, tónverk frekar en leikverk þó að vissulega byggi hver þátttakandi til sína persónu eftir föngum. Þeir fengu dálítinn tíma til að móta persónu sína því [...]