Þú ert hér://Tag: Henrik Ibsen

Sterkastur er sá sem stendur einn

2019-05-27T11:27:10+00:0023. september 2017|

Fyrsta frumsýning haustsins á stóra sviði Þjóðleikhússins, ein hátíðlegasta stund ársins. Freyðivín í fordrykk, forsetinn í húsinu, margir í sínu besta pússi. Eiginlega leitt að ekki skyldi vera hlé til að maður gæti notið þess betur að horfa á hátísku haustsins 2017 allt í kringum sig. Og svo var verkið klassískt og þó brýnt: Óvinur [...]

Nóra, Nóra

2019-08-24T13:41:42+00:0031. desember 2014|

Dúkkuheimili Hörpu Arnardóttur á stóra sviði Borgarleikhússins er án nokkurs vafa ein skemmtilegasta uppsetning á leikriti Ibsens sem ég hef séð. Ég hef séð róttækari uppsetningu (Thomas Ostermeier á Schaubühne í Berlín sem líka var látin gerast í samtíma okkar) og klassískari uppsetningu (Ingmar Bergman í Konunglega í Köben) en Anne Tismer og Pernilla August [...]

Þrefaldur Pétur Gautur

2019-06-19T12:03:16+00:001. júní 2012|

Ég hafði gaman af sýningu Luzerner Theater á Pétri Gaut í Þjóðleikhúsinu á miðvikudagskvöldið og finnst verulega gott hjá Listahátíð að flytja hana inn þó að sjálfsagt hafi helsta ástæðan verið sú að henni stýrir ungur íslenskur leikstjóri, Þorleifur Örn Arnarsson. En ég treysti mér illa til að skrifa um hana vegna þess hvað ég [...]

Örlagasinfónía Heddu Gabler

2019-08-24T13:17:42+00:0011. mars 2011|

Kristín Eysteinsdóttir leggur áherslu á tímaleysi í uppsetningu sinni á Heddu Gabler í Þjóðleikhúsinu. Þýðing Bjarna Jónssonar er afar áheyrileg en líka algerlega úr nútímanum – til dæmis orðtak Jörgens Tesman eiginmanns Heddu sem er svo skemmtilega notað í verkinu: pældu í því. Svið Finns Arnars er sannarlega ekki sú borgaralega stofa sem Heddu finnst [...]