Þú ert hér://Tag: Harpa Arnardóttir

Dagleiðin langa inn í hrun

2019-06-19T11:35:10+00:0012. október 2012|

Jónsmessunóttin sem nýtt leikrit Hávars Sigurjónssonar tekur heiti sitt af er raunar aldrei nefnd beinlínis í verkinu svo ég tæki eftir á frumsýningunni í kvöld. En á Jónsmessunótt fara alls kyns vættir á kreik, að minnsta kosti hjá Shakespeare, og vel gæti Hávar verið að vísa í það með titlinum. Alltént er enginn hörgull á [...]

Banvænar ástríður

2019-08-08T17:28:41+00:0018. febrúar 2012|

Leikhópurinn Aldrei óstelandi hefur gert óhamdar ástríður að sérgrein sinni. Enn er í fersku minni útfærsla hans á Fjalla-Eyvindi í fyrra og í sýningunni Sjöundá í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu tekur hann nú fyrir hina hryllilegu og átakanlegu sögu af fólkinu á bænum Sjöundá á Rauðasandi sem Gunnar Gunnarsson túlkaði á sinn hátt í skáldsögunni Svartfugli. [...]

Örlagasinfónía Heddu Gabler

2019-08-24T13:17:42+00:0011. mars 2011|

Kristín Eysteinsdóttir leggur áherslu á tímaleysi í uppsetningu sinni á Heddu Gabler í Þjóðleikhúsinu. Þýðing Bjarna Jónssonar er afar áheyrileg en líka algerlega úr nútímanum – til dæmis orðtak Jörgens Tesman eiginmanns Heddu sem er svo skemmtilega notað í verkinu: pældu í því. Svið Finns Arnars er sannarlega ekki sú borgaralega stofa sem Heddu finnst [...]

Minna rugl – meira tempó

2019-08-24T14:29:38+00:0017. janúar 2011|

Ung kona fer í fjarlæga eyjarbyggð til að rannsaka kafla í sögu staðarins og skrifa fræðiritgerð um hann. En hún fær óljós svör við spurningum sínum, allir hafa einhverju að leyna, og loks kemur upp úr dúrnum að hún leikur líka tveim skjöldum sjálf. Þetta efni hljómar kunnuglega, það endurómar spennusögur af ýmsu tagi. Enda [...]

Þegar gamli sorrý Gráni var felldur

2019-09-05T21:57:17+00:0016. október 2010|

Verið gæti að Finnski hesturinn eftir Sirkku Peltola sem Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær verði fremur við smekk sjálfstæðismanna og vinstri grænna en samfylkingarmanna því þar er ekki alltaf talað vel um Evrópusambandið. En húmorinn mun áreiðanlega höfða til allra jafnt, einkum þó óborganleg persóna ömmunnar sem Ólafía Hrönn skapar á sviðinu og fylgir manni út [...]

Villtum manni bent á rétta veginn

2020-01-31T16:19:32+00:0011. maí 2008|

Það er ekki ónýtt að láta segja sér allt um handanheiminn á einu kvöldi, eins og gert er í spunaverkinu Dauðasyndunum í Borgarleikhúsinu núna undir stjórn Ítalans Rafaels Bianciotto. Trúðarnir Barbara, Gjóla, Úlfar og Za-ra hafa kynnt sér kvæðið Gleðileikinn guðdómlega eftir Dante Alighieri og gera sitt besta til að endursegja okkur ófróðum þessa miklu sögu sem [...]