Þú ert hér://Tag: Hallveig Rúnarsdóttir

„Ég verð að taka þetta, elskan“

2025-06-22T15:36:01+00:0022. júní 2025|

Hallveig Rúnarsdóttir og Áslákur Ingvarsson endurlífga óperuna Símann eftir ítalsk-ameríska tónskáldið Gian Carlo Menotti (1922–2007) í Iðnó þessa viku. Þau sýndu hana á Óperudögum 2022 og ´23 þar sem hún naut mikilla vinsælda og í þessari viku er lag fyrir þá sem ekki sáu hana þá. Pálína Jónsdóttir leikstýrir, meðleikari á píanó er Hrönn Þráinsdóttir [...]

Sjá hér hve illan endi …

2019-05-08T16:21:43+00:0028. febrúar 2016|

Það var mikil hátíð í Íslensku óperunni í gærkvöldi þegar Benjamin Levy hljómsveitarstjóri og Kolbrún Halldórsdóttir leikstjóri frumsýndu uppsetningu sína á Don Giovanni eftir W. A. Mozart og textahöfundinn Lorenzo da Ponte. Snorri Freyr Hilmarsson gerði smekklega leikmyndina og tókst furðuvel að stækka sviðið með háum baktjöldum og hallandi gólfi. Á hvort tveggja var listilega [...]

Hvað er auður og afl …?

2019-05-22T14:08:47+00:0019. október 2014|

Maður mátti hafa sig allan við að fá ekki alvarlegt kast af þjóðernishroka undir frumsýningunni á Don Carlo í Eldborgarsal Hörpu í gærkvöldi. Á snilldarlega hönnuðu sviði Þórunnar Sigríðar Þorgrímsdóttur, frumlega lýstu af Páli Ragnarssyni, steig fram hver glæsilegi söngvarinn af öðrum og lék og söng hlutverk sitt í einni mestu óperu Verdis undir styrkri [...]

Sungið ævintýri

2019-06-04T08:12:01+00:0023. mars 2014|

Óp-hópurinn sýnir nú barnaóperuna Hans og Grétu eftir þýska nítjándu aldar tónskáldið Engelbert Humperdinck í Salnum í Kópavogi. Textann þýddi Þorsteinn Gylfason, Maja Jantar leikstýrir og Hrönn Þráinsdóttir er bæði tónlistarstjóri og undirleikari. Þetta er bráðskemmtileg og aðgengileg tónlist sem hefur skemmt evrópskum börnum í meira en heila öld. Eitt lagið hefur meira að segja [...]

Meiri Carmen

2019-06-12T13:47:01+00:0026. október 2013|

Það er gaman að fá tækifæri til að spjalla aðeins meira um Carmen og geta bætt því við sem láðist að nefna síðast. Kannski fannst mér alveg sjálfsagt að hópsenurnar með kórunum tveim, Kór og Barnakór Íslensku óperunnar, væru óaðfinnanlegar og þess vegna þyrfti ekki að geta þeirra sérstaklega. En auðvitað er ekki sjálfgefið að slík atriði [...]

Tálkvendið og hermaðurinn

2019-06-12T14:20:17+00:0020. október 2013|

Önnur gamalkunn saga var frumsýnd í óperuformi í Eldborg Hörpu í gærkvöldi, Carmen eftir Georges Bizet sem frumflutt var í París 1875 – við lítinn fögnuð almennra áheyrenda, skilst mér. Fólki fannst ástæðulaust að setja svona pakk á svið – verkalýð, portkonur og hermenn. Síðan hefur þetta orðið ein allra vinsælasta ópera í heimi og [...]

Ljúffengur Ástardrykkur

2020-01-31T14:33:40+00:0026. október 2009|

Það var ótrúlega gaman að hlýða á Ástardrykkinn eftir Donizetti í Íslensku óperunni í gærkvöldi. Félagi minn á frumsýningunni hafði séð uppsetningu á verkinu í sjálfri Vínaróperunni fyrir fáum árum og hann fullyrti að söngurinn væri alveg eins góður hér og þar. Það kom mér ekki á óvart. Hér er valinn maður í hverju einsöngshlutverki: [...]

Er Valgerður betri María en Júlía?

2020-01-31T15:19:50+00:009. maí 2009|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi söngleikinn sígræna Söngvaseið á stóra sviði Borgarleikhússins í þýðingu Flosa Ólafssonar. Gersamlega óþarft er að tíunda efni og boðskap þessa verks sem allir þekkja, það eina sem spurt er um er hvernig tekst til með sviðsetninguna: Nær hún máli miðað við fyrri uppsetningar sem fólk hefur séð hérlendis og erlendis [...]