Þú ert hér://Tag: Hafliði Arngrímsson

Hamingjudag eftir hamingjudag

2022-11-06T13:18:37+00:006. nóvember 2022|

Af einhverri tilviljun hafði ég hvorki séð né lesið Hamingjudaga Samuels Beckett fyrr en í gærkvöldi, bara lesið um þá og það var skrítin lesning: kona í moldarhaug, föst upp að mitti og talar látlaust við mann sem bregst sjaldan við. En í gær sá ég Eddu Björgu Eyjólfsdóttur túlka þessa konu, hana Vinní, á [...]

Við og Afríka – Afríka og við

2019-05-17T13:26:50+00:0024. apríl 2015|

„Það virðist ekki vera til nein fær leið til að sýna hörmulegar afleiðingar eyðni í Afríku á sviði,“ segir þýska leikskáldið Roland Schimmelpfennig í grein á netinu. „Ég er samt viss um að hún er til og ég reyndi að finna hana.“ Leið hans, Peggy Pickit sér andlit Guðs, var frumsýnd á litla sviði Borgarleikhússins [...]

Vaknandi vitund

2019-08-24T12:36:07+00:001. apríl 2011|

Vorið vaknar eftir þýska leikskáldið Frank Wedekind er hvalreki fyrir ungt áhugafólk um leiklist eins og nemendur í Kvennaskólanum sýna fram á þessa dagana. Leikfélag þeirra Fúría sýnir nú þetta rösklega aldargamla leikrit í skólanum sínum við Þingholtsstræti í þýðingu Hafliða Arngrímssonar og undir stjórn Kára Viðarssonar og túlkun krakkanna á kvíða, kvöl og alsælu [...]

Pössum börnin betur

2019-08-24T14:43:09+00:0014. janúar 2011|

Elsku barn eftir Dennis Kelly sem var frumsýnt í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi undir stjórn Jóns Páls Eyjólfssonar er ekki venjulegt leikrit. Það er byggt upp á viðtölum og minnir mest á réttardrama – sem löngum hafa verið vinsæl, einkum í sjónvarpi. En þó að þetta þýði að verkið sé nokkurn veginn allt safn eintala er [...]