Þú ert hér://Tag: Guðrún S. Gísladóttir

Að lifa stríð

2019-05-27T13:35:19+00:0028. september 2014|

Ég hef verið stór aðdáandi Konunnar við 1000° síðan ég las hana nýútkomna en ekki bjóst ég við að hún myndi þola að fara á svið. Tíu tíma sjónvarpssería kannski eða að minnsta kosti ílöng tveggja kvölda leiksýning eins og Heimsljós og Sjálfstætt fólk en ekki eitt tveggja tíma leikrit. Þetta hefur þó verið gert. [...]

Salem í samtímanum

2019-06-04T08:04:55+00:0028. apríl 2014|

Mér er enn í furðu fersku minni uppsetning Stefans Metz á Krítarhringnum í Kákasus eftir Brecht í Þjóðleikhúsinu fyrir fimmtán árum og hlakkaði mikið til að sjá Eldraunina hans á sama sviði í ár. En Eldraunin er að sjálfsögðu allt öðruvísi verk og þar eru brellur leiksviðsins óþarfar og jafnvel til bölvunar. Sýningin er vissulega [...]

Hvað er þá orðið okkar starf?

2019-06-12T12:01:49+00:0027. desember 2013|

Hinir gömlu Grikkir hafa verið rúmfrekir í lífi mínu undanfarið ár. Fyrst var það Heródótus með Rannsóknir sínar sem ég las mér til mikillar ánægju síðastliðið sumar í þýðingu Stefáns Steinssonar. Í gærkvöldi varð svo yngri samtímamaður hans á vegi mínum, gamanleikjaskáldið Aristófanes, þegar Þingkonurnar hans voru frumsýndar á stóra sviði Þjóðleikhússins í þýðingu Kristjáns [...]

„Við erum rétt að byrja“

2019-06-18T17:38:03+00:0027. desember 2012|

Á undanförnum árum og áratugum hafa ótal ritgerðir og bækur verið skrifaðar um hegðun einræðisherra og harðstjóra út frá karakterum eins og Adolf Hitler, Jósep Stalín og Maó. Því væri eðlilegt að samtímaleikskáld okkar gæti samið gott verk um fyrirbærið. En það kemur á óvart að Shakespeare (f. 1564, d. 1616) skuli hafa vitað nákvæmlega [...]

Glóandi kvika undir hrauni

2019-08-08T17:08:27+00:0025. febrúar 2012|

Það sem Eugene O’Neill vissi svo vel var að tilfinningarnar sem við berum til okkar nánustu eru aldrei neitt eitt, ást, hatur, reiði, öfund, fyrirlitning, heldur flókin blanda af þessu öllu saman. En eitt er að vita og annað að koma í orð og athöfn eins og hann gerir svo snilldarlega í Dagleiðinni löngu sem [...]

Að eiga son eða syni

2019-08-24T13:43:10+00:005. mars 2011|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi sjónleikinn Allir synir mínir eftir Arthur Miller í nýrri munntamri þýðingu Hrafnhildar Hagalín og undir stjórn Stefáns Baldurssonar. Þetta er ríflega sextugt leikverk, fyrst sýnt 1947. Það gerist árið áður og sprettur beint upp úr darraðardansi heimsstyrjaldarinnar sem þá var nýlokið. Joe Keller (Jóhann Sigurðarson) verksmiðjueigandi býr við góð efni í [...]