Þú ert hér://Tag: Guðni Franzson

Veslings Marat

2023-02-08T16:12:40+00:0027. janúar 2023|

Áhorfendum á Marat/Sade í Borgarleikhúsinu er boðið upp á tvær snilldarhugmyndir. Önnur er beinlínis leikritið sjálft, Marat/Sade eða ofsóknin og morðið á Jean Paul Marat sýnt af vistmönnum geðveikrahælisins í Charenton undir stjórn de Sade markgreifa eftir þýska leikskáldið Peter Weiss. Það er varla hægt að hugsa sér geggjaðri hugmynd en að horfa á frönsku [...]

Ég á gull að gjalda – en gráta ekki má

2022-09-30T14:24:07+00:002. september 2022|

Ævintýraóperan Mærþöll eftir Þórunni Guðmundsdóttur – bæði texti og tónlist – var frumsýnd í Gamla bíói í gærkvöldi. Ég hef áður séð nokkrar gamanóperur Þórunnar, byggðar á þjóðararfinum, og þær hafa allar verið eftirminnilega skemmtilegar, textinn vel ortur og fyndinn og tónlistin vel samin og aðlaðandi í klassískum og þjóðlegum stíl án þess kannski að [...]

„Öll hvarf heimsins blíða“

2019-06-12T12:29:09+00:004. nóvember 2013|

Pétur Eggerz leikari flytur um þessar mundir einleik sinn um Jón Steingrímsson, Eldklerkinn, í Hallgrímskirkju undir stjórn Sigrúnar Valbergsdóttur og var fyrsta sýningin í gær. Textann byggir hann á sjálfsævisögu Jóns sem er með merkustu ævisögum eftir Íslending á öllum öldum og þar er hápunkturinn auðvitað reynsla Jóns af Skaftáreldum og sjálf eldmessan. Um einfalda en [...]

Á vettvangi glæpsins

2019-06-12T15:41:17+00:006. maí 2013|

Sýningin Hvörf sem Lab-Loki leikhópurinn sýnir nú í samstarfi við Þjóðleikhúsið byggist á málskjölum Guðmundar- og Geirfinnsmálsins en beitir sér einkum að þróuninni í yfirheyrslum yfir helstu sakborningum. Merkilegt hefði líka verið að fá að heyra málsmeðferð fyrir hæstarétti  en á það var bara minnt rétt í lokin að þar var stærsti glæpurinn framinn. Allar [...]

Sagan af Flumbru og sveinunum átta

2019-06-19T12:38:20+00:0029. apríl 2012|

Möguleikhúsið frumsýndi í dag í menningarmiðstöðinni Gerðubergi leikgerð Péturs Eggerz af hinni ástsælu sögu Guðrúnar Helgadóttur, Ástarsögu úr fjöllunum. Leikgerð er kannski dálítið stórt orð því í rauninni er þetta fremur sögustund en leiksýning. Alda Arnardóttir segir söguna með fjörugum sönglögum eftir Guðna Franzson sem hún flytur ásamt Kristjáni Guðjónssyni tónlistarmanni. Þá munar mikið um litríkan [...]