Þú ert hér://Tag: Felix Bergsson

Sælla er að gefa en þiggja

2022-11-28T15:34:10+00:0027. nóvember 2022|

Þau voru að sprengja enn eina gleðisprengjuna í Gaflaraleikhúsinu, Jól á náttfötunum eftir Gunnar Helgason og Felix Bergsson sem þeir leika líka ásamt Karli Olgeirssyni píanóleikara. Lögin smellnu semja þeir Jón Ólafsson og Máni Svavarsson, ljósunum sem taka fullan þátt í sýningunni stýrir Freyr Vilhjálmsson og leikstjóri er að sjálfsögðu Björk Jakobsdóttir sem líka sér [...]

Eins og allir aðrir – bara spes

2019-10-20T13:45:34+00:0020. október 2019|

Mamma klikk eftir Gunnar Helgason er meðal vinsælustu íslensku barnabóka þessarar aldar en það lá alls ekki á borðinu að hægt væri að færa hana á svið með góðu móti. Eins og allir sem hafa lesið hana vita geymir hún óhemju stórt leyndarmál sem við komumst ekki að fyrr en í lokin – og verðum [...]

Matarlist í Hafnarfirði

2019-05-20T16:45:49+00:001. mars 2015|

Gaflaraleikhúsið heldur uppi heiðri grínsins þessi misserin og ekki er hann slakur farsinn sem Gunnar Helgason og Felix Bergsson hafa kokkað saman og kalla Bakaraofninn. Ég er með svo miklar harðsperrur í kjálkunum eftir hlátursköstin að ég get ekki ennþá talað með góðu móti. Gott að geta látið nægja að skrifa. Þeir fengu sem sagt [...]

Segja vil ég sögu af sveinunum þeim …

2019-06-18T17:52:50+00:003. desember 2012|

Íslendingar eiga Jóhannesi úr Kötlum mikið að þakka að hann skyldi nota tíma sinn, orku og sköpunarkraft til að bræða saman gamlar sögur af Grýlu, Leppalúða og þeirra hyski, jólasveinum og jólaketti þar með töldum, og setja þær í aðgengilega, myndræna, fyndna og hæfilega grimma bragi handa fólki á öllum aldri. Sú góða bók Jólin koma er [...]

Svart og hvítt

2020-01-30T14:58:18+00:0031. janúar 2010|

Leiksýningarnar tvær sem ég sá um helgina voru býsna ólíkar. Ekki segi ég kannski að ég hafi farið öfganna á milli en ekki langt frá því. Á föstudagskvöldið sáum við hjónin Tilbrigði við stef eftir Strindberg og Þór Rögnvaldsson í salnum uppi í Iðnó. Í gær lá leiðin á Algjöran Sveppa eftir Gísla Rúnar Jónsson í Íslensku óperunni. Hvort [...]