Þú ert hér://Tag: Eggert Hilmarsson

Grímur sem leika

2019-06-18T12:29:34+00:0027. janúar 2013|

Látbragðsleiknum Hjartaspöðum sem Skýjasmiðjan sýnir í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði hefur verið tekið mjög hlýlega. Aðstandendum hefur líklega ekki dottið í hug að orðalaust klukkutímaverk um vistmenn og starfsfólk á elliheimili myndi freista margra, alltént voru einungis áætlaðar fjórar sýningar í byrjun. En viðbrögð gagnrýnenda hafa verið einróma lof, aðrir gestir hafa lagt sitt af mörkum [...]

Að lifa lengi á lyginni

2019-06-19T10:25:42+00:0012. nóvember 2012|

Sögurnar af Múnkhásen barón hafa skemmt fólki alveg síðan á 18. öld þegar hann sjálfur var á dögum, fyrst í hans eigin frásögn, svo í endursögnum, misjafnlega trúum frumsögunum, í bókum ýmissa höfunda og loks í útvarpi og kvikmyndum. Það er ákaflega vel til fundið af Gaflaraleikhúsinu að rifja upp þessar sögur í fjölskyldusýningu sinni [...]

Heimsfrægð eða dauði

2020-01-24T16:32:12+00:007. maí 2010|

Ég fór að sjá nýjasta Hugleikinn í gærkvöldi í nýju húsnæði þess ágæta áhugamannaleikfélags úti í Örfirisey, Rokk. Það var alveg þreföld ánægja. Í fyrsta lagi að þessi yndislegi hópur skuli vera kominn með “eigið” húsnæði (þó að stólarnir séu ekki góðir við gömul bök og rassa), í öðru lagi að ný kynslóð skuli vera [...]

Hláturinn lengi lifi

2020-01-31T15:01:35+00:0016. maí 2009|

Ég fékk góða útrás fyrir hláturþörfina í vikunni. Á fimmtudagskvöldið sá ég Kristján Ingimarsson leika listir sínar í Kassanum í sýningu sinni Creature - og hvílíkar listir! Og í gærkvöldi horfði ég á söguna gömlu um Sigríði og Indriða lifna við enn einn ganginn hjá Hugleik á Smíðaverkstæðinu í leikritinu Ó, þú aftur. Ég veit ekki hvort Jón [...]