Þú ert hér://Tag: Daníel Bjarnason

Níðingslega lifandi Shakespeare

2019-06-13T18:20:18+00:0030. desember 2018|

Það segir sitt um álit manna og áhyggjur af ástandi heimsins að jólasýningar beggja stóru leikhúsanna skuli fjalla um viðurstyggð harðstjórnar. Í Þjóðleikhúsinu er skopast að Adolf Hitler en í Borgarleikhúsinu er rifjað upp rúmlega 400 ára gamalt leikrit Shakespeares um Ríkharð þriðja, kroppinbakinn sem myrti sér leið til konungdóms á Englandi. Brynhildur Guðjónsdóttir leikstýrir [...]

Ósköp er litla höndin þín köld

2019-08-08T16:19:49+00:0018. mars 2012|

Óperuleikstjórinn Jamie Hayes setti upp nokkrar sýningar hjá Íslensku óperunni í Gamla bíó og það er greinilegt á nýrri uppsetningu hans á La Bohème í Eldborgarsal Hörpu að hann hefur verið orðinn ansi leiður á þrengslunum á gamla staðnum. Þeir sem sáu uppsetningu hans á La Traviata fyrir um fjórum árum kannast við aðferðir hans [...]

Fyrsta óperan í Hörpu

2019-08-23T14:09:47+00:0023. október 2011|

Það var gífurleg stemning í Hörpu á laugardagskvöldið: fullt í öllum sölum og þúsundir í húsinu. Þar að auki var verið að frumsýna fyrstu óperuna í Eldborg og mikil ánægja með þann áfanga. Menn óskuðu hver öðrum til hamingju með daginn eða buðu gleðilega hátíð. Óperan var sú gamalkunna Töfraflauta Mozarts, dýrlegt músíkstykki með nokkrum [...]

Ljúffengur Ástardrykkur

2020-01-31T14:33:40+00:0026. október 2009|

Það var ótrúlega gaman að hlýða á Ástardrykkinn eftir Donizetti í Íslensku óperunni í gærkvöldi. Félagi minn á frumsýningunni hafði séð uppsetningu á verkinu í sjálfri Vínaróperunni fyrir fáum árum og hann fullyrti að söngurinn væri alveg eins góður hér og þar. Það kom mér ekki á óvart. Hér er valinn maður í hverju einsöngshlutverki: [...]