Þú ert hér://Tag: Brynhildur Guðjónsdóttir

Leiðin til Rómar

2019-05-27T13:01:24+00:0018. október 2014|

Ekki get ég neitað því að ég kveið ofurlítið fyrir að sjá á sviði leikgerðina af Karítas, tveggja binda skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur. Verkið er mikil epík, það segir svo langa sögu, teygir sig yfir heila öld, fer svo víða og segir frá svo mörgum persónum að það virtist óðs manns æði að gera því [...]

Um hunda og menn

2019-06-04T08:33:15+00:0014. mars 2014|

Stundum er forvitnilegt að fara á leiksýningu þegar margir eru búnir að tjá sig um hana, einkum ef þeir eru ekki sammála, og bera eigið mat saman við mat hinna. Gagnrýnendur Djöflaeyjunnar voru til dæmis ekki hrifnir af Furðulegu háttalagi hunds um nótt í Borgarleikhúsinu en Hlín Agnarsdóttir gaf fjórar og hálfa stjörnu í DV, [...]

Doktor Fástus yngdur upp

2019-06-18T11:25:05+00:0013. mars 2013|

Þau ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur MR-ingarnir sem nú sýna Doktor Fástus í myrku ljósi í Tjarnarbíó. Þetta er um það bil 75 ára gamalt verk eftir bandaríska framúrstefnuhöfundinn Gertrud Stein og þar eru sannarlega ekki farnar beinustu leiðir að efninu en það varð dillandi skemmtilegt hjá krökkunum undir hugmyndaríkri stjórn [...]

Allt til bóta

2023-09-14T18:36:11+00:002. nóvember 2012|

Fyrsta sviðsverk Ragnars Bragasonar, Gullregn, ber þess merki að höfundurinn er vanur að vinna fyrir kvikmyndavélar. Verkið er samsett úr þrettán atriðum sem gerast með mislöngu millibili, það líða allt frá tíu mínútum að fjórum mánuðum á milli og þá er sviðið myrkvað – þar sem Ragnar hefði klippt í kvikmynd. Þetta verður svolítið gamaldags [...]

Örlagasinfónía Heddu Gabler

2019-08-24T13:17:42+00:0011. mars 2011|

Kristín Eysteinsdóttir leggur áherslu á tímaleysi í uppsetningu sinni á Heddu Gabler í Þjóðleikhúsinu. Þýðing Bjarna Jónssonar er afar áheyrileg en líka algerlega úr nútímanum – til dæmis orðtak Jörgens Tesman eiginmanns Heddu sem er svo skemmtilega notað í verkinu: pældu í því. Svið Finns Arnars er sannarlega ekki sú borgaralega stofa sem Heddu finnst [...]

Saga af görpum

2019-08-08T14:56:17+00:0013. febrúar 2010|

Gerpla Halldórs Laxness, saga fóstbræðranna Þorgeirs Hávarssonar og Þormóðs Bessasonar Kolbrúnarskálds, er glæsilegt verk sem hefur margt til að laða að sér breiðan hóp lesenda: mikla atburðarás og lifandi lýsingar á stórum og smáum viðburðum, spennu og ofbeldi, óleyfileg erótísk sambönd, einlæga vináttu og heitar ástir. Hún hefur fornlegan stíl, er fyndin og hefur djúpan [...]

Frida, Harry og Heimir

2020-01-30T16:43:17+00:0013. september 2009|

Stóru leikhúsin opnuðu dyr sínar fyrir fyrstu gestum haustsins um helgina og hófu bæði vetrarstarfið á íslenskum verkum. Það var um það bil það eina sem þau áttu sameiginlegt. Á stóra sviði Þjóðleikhússins var okkur sögð saga mexíkóska myndlistarmannsins Fridu Kahlo á föstudagskvöldið, átakanleg ævisaga vörðuð slysum og svikum; á litla sviði Borgarleikhússins var á [...]