Þú ert hér://Tag: Bergur Ebbi Benediktsson

Samhengisleysi

2020-02-18T09:33:56+00:0018. febrúar 2020|

Bergur Ebbi. Skjáskot. Mál og menning, 2019. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2020. Í harmleikjum Shakespeares taka áhorfendur gjarnan eftir því að aðalpersónan er horfin af sviðnu í fjórða þætti; aðrar persónur verksins, og um leið minni háttar, eru þá í forgrunninum um stundarsakir og atburðir taka á sig einhverja lykkju. Þeir sem [...]

Veröld ný og rafræn

2020-01-27T11:41:14+00:0026. janúar 2020|

Það er óvænt að sjá fólk flykkjast í leikhús, ekki til að horfa á leiksýningu heldur til að hlusta á fyrirlestur. Að vísu eru þeir aðilar báðir, sem nú fylla Borgarleikhúsið með sjálfum sér einum, ástríðufullir fræðimenn og vanir flytjendur en þetta virkar samt á mig sem merkilegt afturhvarf til tímanna fyrir tilkomu útvarpsins. Ég [...]

Hikikomori

2019-10-10T17:55:21+00:0027. september 2019|

Bergur Ebbi. Stofuhiti. Ritgerð um samtímann. Mál og menning, 2017.   Bergi Ebba brennur á vörum ein spurning og hún sækir svo fast að honum að til að reyna að fá eitthvert svar við henni skrifar hann heila bók, og spurningin er sú hvernig hann eigi að skilgreina sig í þeim nútíma sem nú grúfir [...]

Tvö ljóð

2019-09-19T15:47:21+00:0011. september 2019|

Eftir Berg Ebba Benediktsson Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2013   Vestur-Berlín IV Í rjóðri í Tiergarten, í skjóli frá skarkala borgarinnar. Hér er alltaf haust. Hver dagur byrjar eins, þú gengur af stað í snjóþvegnum gallajakka. Hér er upptökuverið þar sem Bowie tekur upp Heroes eftir korter. Útsýni yfir Potzdamer Platz. Heitur [...]

Ekki er allt gull sem glóir

2019-06-12T12:07:21+00:0021. nóvember 2013|

Í gærkvöldi var nýtt leikverk eftir Berg Ebba Benediktsson, Jóreykur, leiklesið í Tjarnarbíó undir stjórn Þorsteins Bachmann. Leikritið Klæði sem var sýnt í Norðurpólnum fyrir rúmum þrem árum var líka eftir Berg Ebba; það fjallaði um ungt fólk og stefnumót; Jóreykur er mun viðameira verk og metnaðarfyllra. Við erum í upphafi leiks stödd á skrifstofu [...]

Mælanlegir yfirburðir

2019-04-03T15:22:05+00:006. júní 2013|

Nokkur orð um spegla Eftir Berg Ebba Benediktsson Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2012 Í hryllingsmyndum er algengt að nota spegla til að búa til óþægilegar aðstæður. Kona stendur við baðherbergisvask og lokar skáp fyrir framan sig. Á skáphurðinni er spegill og skyndilega sjáum við hrottalegan hnífamann í speglinum. Mér finnst óþægilegt þegar [...]

Fötin skapa manninn – eða hvað?

2020-01-24T15:54:54+00:0031. maí 2010|

Mér þykir leitt að játa fyrir lesendum mínum að mér finnst ég eiginlega vanhæf til að fjalla um tvo síðustu viðburði sem ég sá á sviði. Annar var dansverkið Bræður í Þjóðleikhúsinu sem var frumsýnt á fimmtudagskvöldið var, hitt var leikverkið Klæði sem var frumsýnt í gærkvöldi á Norðurpólnum. Ástæður til vanhæfi eru þó ólíkar [...]