Þú ert hér://Tag: Bergþór Pálsson

Sungið um ástir og grimmileg örlög

2019-03-18T11:15:15+00:006. nóvember 2017|

Efnið í óperunni Toscu eftir Giacomo Puccini virðist mun nær manni núna en áður; kannski vegna þess hvað ofbeldi gegn minni máttar hefur verið mikið í umræðunni. Greg Eldridge bendir líka á í grein í leikskrá að pólitísk ólga í heiminum núna minni á aðstæðurnar í óperunni. Í Toscu er listmálari fangelsaður fyrir að leyna [...]

Edda, Bibba og Túrilla

2019-05-17T14:17:14+00:0017. apríl 2015|

Við fórum loksins að sjá Edduna hennar Eddu Björgvinsdóttur í Gamla bíó í gærkvöldi. Það var sýning sem kom okkur meira á óvart en við áttum von á. Áður en sýningin hófst fengum við að sjá ótal brot á tjaldi frá ferli Eddu í sjónvarpi og kvikmyndum, þau voru hljóðlaus en mörg þeirra kannaðist ég [...]

Mala domestica

2019-06-04T08:45:08+00:002. mars 2014|

Það var söguleg stund í gærkvöldi í margra huga þegar fagnað var innilega í fullum Eldborgarsal Hörpu frumsýningu íslenskrar óperu í fullri lengd um sögulegt íslenskt efni. Söngvurunum í Ragnheiði var tekið með kostum og kynjum í uppklappinu, einkum Elmari Gilbertssyni sem söng hlutverk Daða Halldórssonar, Þóru Einarsdóttur sem söng titilhlutverkið og Viðari Gunnarssyni sem [...]

„Í alsælu vímunnar“

2019-06-12T14:58:27+00:009. október 2013|

Sýning Leikfélags Reykjavíkur á Jeppa á Fjalli eftir Holberg, Megas og Braga Valdimar Skúlason á Nýja sviði Borgarleikhússins minnir mest á partý sem hefur farið úr böndunum. Þar ægir ýmsum gerðum sviðssýninga saman – þetta er leikrit en líka söngleikur og tónleikar – og einhvern veginn „of“ af öllu. Benedikt Erlingsson leikstjóri hefur farið á [...]

Ósköp er litla höndin þín köld

2019-08-08T16:19:49+00:0018. mars 2012|

Óperuleikstjórinn Jamie Hayes setti upp nokkrar sýningar hjá Íslensku óperunni í Gamla bíó og það er greinilegt á nýrri uppsetningu hans á La Bohème í Eldborgarsal Hörpu að hann hefur verið orðinn ansi leiður á þrengslunum á gamla staðnum. Þeir sem sáu uppsetningu hans á La Traviata fyrir um fjórum árum kannast við aðferðir hans [...]

Sungið um ástir og hefnd

2019-09-05T22:03:12+00:0015. október 2010|

Sagan sem ópera Verdis Rigoletto segir er mögnuð og vel til fundið hjá leikstjóranum, Stefáni Baldurssyni, að flytja hana inn í undirheima Ítalíu í nútímanum. Með því minnir hann á að enn eru þeir feður til sem halda að þeir geti verndað dætur sínar með því að loka þær inni og enn er ungum stúlkum [...]

Má ég fá meira?

2020-01-30T15:39:13+00:0027. desember 2009|

Á fjölmennum leiksýningum eins og Oliver! grípur mann sú tilfinning að einmitt til slíks brúks hafi leikhús verið hugsað: til að fylla sviðið af fólki, lífi og fjöri. Þegar barnahópurinn þrammaði inn í borðsal fátækrahælisins í upphafi frumsýningar í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi og raðirnar ætluðu engan endi að taka þá fylltist ég öryggistilfinningu, þetta yrði [...]