Þú ert hér://Tag: Benedikt bókaútgáfa

Ég heiti biðstofa

2024-10-11T11:38:48+00:0011. október 2024|

Eftir Ursula Andkjær Olsen, í þýðingu Brynju Hjálmsdóttur. Úr Tímariti Máls og menningar, 3. hefti 2024   Í tilefni af kvöldstund með Ursulu Andkjær Olsen birtum við hér ljóðið „Ég heiti biðstofa“ úr 3. hefti 2024. Ursula mun lesa úr verkum sínum og ræða um ljóðlistina, þann 18. október 2024, kl. 20.00 í Mengi og [...]

Raunir í Smartlandi

2024-05-21T08:58:32+00:0021. maí 2024|

Bergþóra Snæbjörnsdóttir: Duft. Söfnuður fallega fólksins. Benedikt bókaútgáfa, 2023. 345 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 2.hefti 2024.       Verónika Levine er eini erfingi Stöðvarinnar, líkamsræktarveldis sem foreldrar hennar, Hákon og Halldóra, byggðu upp á níunda og tíunda áratugnum. Fegurð er æðsta dyggðin í veröld þeirra en hún er skilgreind afskaplega þröngt, eiginlega [...]

Brot úr Duft

2023-11-17T09:59:00+00:0016. nóvember 2023|

eftir Bergþóru Snæbörnsdóttur Úr skáldsögunni Duft - Söfnuður fallega fólksins. Benedikt bókaútgáfa gefur út.       Höfrungur sem brosir ekki   Marokkó 2024 Prins var enn einu sinni farinn yfir í næsta líf og skildi ekkert eftir sig nema skelina. Nú lá hann innpakkaður í grænt flísteppi með tyggigúmmíbleikan varalit og ljósan augnskugga í [...]

Brot úr Serótónínendurupptökuhemlar

2023-10-25T15:14:16+00:0025. október 2023|

eftir Friðgeir Einarsson Brot úr skáldsögunni Serótónínendurupptökuhemlar sem er væntanleg í byrjun nóvember. Benedikt bókaútgáfa gefur út.           Í sömu byggingu og heilsugæslan var apótek. Á meðan Reynir beið eftir að lyfseðillinn væri afgreiddur skoðaði hann lyfjabox úr plasti sem til voru í þónokkru úrvali. Hann ákvað að festa kaup á [...]

Mæður ljóss og lífs

2021-08-18T10:11:53+00:0019. ágúst 2021|

Kristín Svava Tómasdóttir: Hetjusögur. Benedikt bókaútgáfa, 2020. 126 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 3. hefti 2021   „Fáar konur hafa utan heimils unnið jafn mikil erfið og vandasöm störf fyrir jafn lítil laun“   Orðið ljósmóðir var fyrir nokkrum árum valið fallegasta orð íslenskrar tungu. Kvennastéttin sem sér um konur fyrir, eftir og á [...]

Ljósmóðir í Vesturbænum

2021-05-12T22:36:11+00:0012. maí 2021|

Auður Ava Ólafsdóttir. Dýralíf. Benedikt bókaútgáfa, 2020. 205 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 2. hefti 2021.   Kynslóðir koma, kynslóðir fara, allar sömu ævigöng. Gleymist þó aldrei eilífa lagið við pílagrímsins gleðisöng. (Matthías Jochumsson)   Það er óneitanlega ættarsvipur með aðalpersónunum í skáldsögum Auðar Övu Ólafsdóttur. Þær eru verulega færar á sínu sviði, ef [...]

Þegar jarðskorpan rís

2021-05-12T22:24:27+00:0012. maí 2021|

Sigríður Hagalín. Eldarnir: Ástin og aðrar hamfarir. Benedikt bókaútgáfa, 2020. 287 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 2. hefti 2021 Sigríður Hagalín er ekki í neinum feluleik í þriðju skáldsögu sinni, Eldunum. Sagan hefst í lokuðu rými þar sem sögukona okkar liggur og berst við að ná andanum, reynir að láta síðustu súrefnisdreggjarnar endast meðan [...]