Þú ert hér://Tag: Baltasar Breki Samper

Kvótinn og dauðinn við hafið

2019-05-27T11:22:03+00:0027. desember 2017|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi Hafið eftir Ólaf Hauk Símonarson undir stjórn Sigurðar Sigurjónssonar. Skemmtilega og þénuga leikmynd gerir Finnur Arnar Arnarson en búningana hannar Þórunn María Jónsdóttir. Það er gamall kunningi, þetta verk, minnisstætt frá fyrstu uppfærslunni í Þjóðleikhúsinu 1992 og ekki síður úr kvikmynd Baltasars Kormáks eftir því frá 2002. Þórður útgerðarmaður (Þröstur Leó [...]

Illt er að binda ást við þann …

2019-05-03T15:35:54+00:007. janúar 2017|

Eins og sjálfsagt flestar konur hef ég reynslu af karlmönnum eins og Sölva (Stefán Hallur Stefánsson) í leikritinu Gott fólk sem frumsýnt var í Kassanum í gærkvöldi (ég sá aðalæfingu kvöldið áður). Þetta er gasalega sætur strákur, orðheppinn og skemmtilegur, heillandi við fyrstu kynni, en þessir kostir valda því að hann er tregur til að [...]

Föst á Djöflaeyjunni – engin huggun þar

2019-05-06T17:20:01+00:004. september 2016|

Það var annaðhvort rétt fyrir eða eftir áramótin áttatíu og þrjú og fjögur sem ég las fyrst um fólkið í Gamla húsinu og Thulekampinum, þá sendi Einar Kárason kaflann um daginn þegar Hreggviður reyndi að setja heimsmet í kúluvarpi til Tímarits Máls og menningar sem ég ritstýrði þá. En ég man ágætlega hvernig mér leið [...]

Ástin hefur … hendur sundurleitar

2019-05-27T11:37:02+00:0027. desember 2015|

Það má teljast djarft að setja upp Sporvagninn Girnd um miðjan ískaldan vetur í Þjóðleikhúsi Íslendinga, þetta heita og sveitta verk sem snýst um ástríður og gerist í þrúgandi hita Suðurríkja Bandaríkjanna. Stefán Baldursson leikstjóri er þó hvergi banginn og hefur með sér þétta sveit kvenna, aðstoðarmanninn Eddu Björgu Eyjólfsdóttur, leikmyndahönnuðinn Þórunni Sigríði Þorgrímsdóttur og [...]

Ennþá gerast ævintýr

2019-05-16T16:33:07+00:0013. september 2015|

Það var ekki laust við að gæsahúð hríslaðist um mig þegar ég gekk í salinn í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Á stóra sviðinu blasti við sjálfur ævintýraskógurinn, dimmur og djúpur, með himinháum laufþungum trjám sem sólargeislar seytluðu í gegnum. Þarna lagði Börkur Jónsson leikmyndahönnuður upp til dýrlegrar skemmtunar enda var sýningin framundan um frægasta útlaga allra [...]

Ástin er eilíf

2019-05-17T14:08:51+00:0025. apríl 2015|

Ellefu útskriftarnemar af leikarabraut Listaháskóla Íslands frumsýndu í gærkvöldi Að eilífu eftir Árna Ibsen í Smiðjunni undir stjórn Stefáns Jónssonar. Verkið var upphaflega samið fyrir slíkan útskriftarhóp árið 1997 og ég man að sýningin olli mér vonbrigðum af ýmsum ástæðum. Það gerði ekki frumsýningin í gær. Hún var eldfjörug, hugmyndarík í stóru sem smáu og [...]

Drauma-Smiðjan

2019-06-15T15:40:10+00:0024. mars 2013|

Ég fann fyrir tilfinningu eftir sýningu Nemendaleikhússins á Draumi á Jónsmessunótt í Smiðjunni í gærkvöldi sem sumt leikhúsfólk hefur fjölyrt um í ævisögum sínum: ég vildi að sýningin væri ekki búin heldur héldi áfram – eða byrjaði upp á nýtt! Mig langaði ekki til að rjúfa töfrana og fara út úr húsinu. Leikritið er auðvitað [...]