Þú ert hér://Tag: Aldrei óstelandi

Hvers vegna var Natan myrtur?

2019-04-03T15:35:15+00:0027. október 2017|

Í gær frumsýndi leikhópurinn Aldrei óstelandi leikverkið Natan eftir Sölku Guðmundsdóttur og leikhópinn á Litla sviði Borgarleikhússins; stjórnandi var sem fyrr Marta Nordal og meðal leikenda voru bæði klassískar stjörnur hópsins og spennandi nýliðar. Efnið er líka klassískt í íslenskri sögu: morðið á Natani Ketilssyni á Illugastöðum í Húnavatnssýslu árið 1828 sem tvær manneskjur voru [...]

Þið eruð ekki laus við mig

2019-05-16T16:47:58+00:0011. september 2015|

Edda Björg Eyjólfsdóttir vann afrek á sviði Kúlu Þjóðleikhússins í gær þegar hún frumsýndi 4:48 Psychosis, síðasta verkið sem enska leikskáldið Sarah Kane (1971-1999) skrifaði áður en hún drap sig. Edda er eini leikarinn á sviðinu í klukkutíma og tólf mínútur; tímalengdin er bundin í texta en passaði merkilega vel á frumsýningu. Með sér hefur [...]

Ekki mættu allir sem boðið var

2019-05-27T11:38:11+00:0024. nóvember 2014|

Leikhópur Mörtu Nordal og Eddu Bjargar Eyjólfsdóttur, Aldrei óstelandi, frumsýndi í gærkvöldi leikgerð hennar og leikhópsins af verðlaunabók Einars Kárasonar, Ofsa, í Kassa Þjóðleikhússins. Verkið segir frá aðdraganda eins hörmulegasta glæps Sturlungaaldar, Flugumýrarbrennu, og endar á brennunni sjálfri. Þetta er auðvitað kvikmyndaefni og ekki augljóst hvernig má laga það að litlu sviði og fáum leikendum [...]

Rannsókn á kúgun

2019-06-12T11:57:03+00:0029. desember 2013|

Duttlungar lífsins hafa skikkað svo til að ég hafði aldrei séð Lúkas eftir Guðmund Steinsson fyrr en í gærkvöldi. Þá var það frumsýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu á vegum leikhópsins Aldrei óstelandi og undir stjórn Mörtu Nordal. Verkið kom mér mjög þægilega á óvart, það er fantavel skrifað og uppsetningin er hugkvæm, markviss og mögnuð. [...]

Banvænar ástríður

2019-08-08T17:28:41+00:0018. febrúar 2012|

Leikhópurinn Aldrei óstelandi hefur gert óhamdar ástríður að sérgrein sinni. Enn er í fersku minni útfærsla hans á Fjalla-Eyvindi í fyrra og í sýningunni Sjöundá í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu tekur hann nú fyrir hina hryllilegu og átakanlegu sögu af fólkinu á bænum Sjöundá á Rauðasandi sem Gunnar Gunnarsson túlkaði á sinn hátt í skáldsögunni Svartfugli. [...]

Kvenmynd eilífðarinnar

2019-08-24T14:35:34+00:0016. janúar 2011|

Þeir sem sáu rómaða sýningu Leikfélags Reykjavíkur á Fjalla-Eyvindi Jóhanns Sigurjónssonar fyrir nokkrum áratugum á viðamiklu, natúralísku sviði Steinþórs Sigurðssonar með hátimbruðum baðstofum, fjöllum sínum og jöklum eiga eflaust bágt með að ímynda sér þetta sama verk á þröngu, nöktu verksmiðjugólfi þar sem engir litir lífga umhverfið og engin hjálpartæki er að sjá önnur en [...]